Sport

Einvígi Auðuns og Benna í dag

Íslandsmótið í kraftlyftingum verður háð á Grand Hótel í dag og hefst klukkan 12 á hádegi. Mótið í dag er 20 ára afmælismót Kraftlyftingasambands Íslands og því hefur verið lagt mikið í undirbúning þessa 34. Íslandsmóts. Þegar þetta er skrifað hafa 19 keppendur verið skráðir til leiks á mótið, þar af þrjár konur. Íslandsmótið í kraftlyftingum er jafnan hápunktur vertíðarinnar hjá lyftingamönnum og það er mál manna að mótið í ár verði eitt það rosalegasta í manna minnum. Það sem bera mun hæst á mótinu í dag verður einvígi þeirra Benedikts Magnússonar og Auðuns Jónssonar í þyngsta flokknum. Auðunn hefur verið einráður í þungavigtinni undanfarin ár, en hinn kornungi Benedikt hefur verið að bæta sig gríðarlega á síðustu misserum og er orðinn einn besti réttstöðulyftari í heiminum í dag. Mikil eftirvænting ríkir fyrir baráttu þeirra "Tarfsins" og "Verndarans", eins og þeir Benedikt og Auðunn hafa verið kallaðir. Auðunn Jónsson segis vera í sínu besta formi þessa dagana og á besta árangur landsins í samanlögðu, 1.050 kg. Hann segist þó eiga nóg inni og stefnir á 1.100 kg múrinn í dag. "Ég hef aldrei verið sterkari en í dag og set því markið á 1.100 kílóin. Ég mun þurfa að ná góðum lyftum bæði í hnébeygjunni og bekknum til að slá Benna við," sagði Auðunn, sem á von á því að verða fyrstur Íslendinga til að taka 300 kíló í bekkpressunni, en hann á núverandi Íslandsmet í greininni, 290 kíló. Benedikt Magnússon er sannkallað undrabarn í íþróttinni, en þessi liðlega tvítugi drengur er nýkominn heim frá Bandaríkjunum úr sérstakri æfingaferð, þar sem hann var að taka vel á því. Hans sterkasta grein er réttstöðulyftan og þar hefur hann verið að setja nýja staðla upp á síðkastið. Benedikt á núgildandi Íslandsmet í greininni, sem er 400,5 kíló. Hann hefur hins vegar verið að leika sér með þá þyngd á æfingum síðustu vikur og því er engin leið að spá um hve hátt drengurinn getur farið í mótinu í dag. Hjalti "Úrsus" Árnason spáir því að metin muni falla í dag. "Þetta verður einfaldlega móðir allra móta. Það hefur ekki gerst áður að tveir svona hrikalegir menn séu að keppa hvor við annan í þessari keppni áður og möguleikar þeirra beggja að fara í 1100 kílóin eru góðir. Það sýnir bara að þetta sport er komið til að vera og gaman að þetta skuli einmitt eiga sér stað á 20 ára afmælismótinu," sagði Hjalti, sem býst við húsfylli á mótinu sem hefst klukkan 12 á hádegi í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×