Pulis semur við Stoke 16. apríl 2005 00:01
Ég er mjög ánægður með að þessi mál skulu vera komin á hreint og að við getum núna loksins sest niður sem ein heild og sett okkur markmið fyrir næsta ár," sagði Tony Pulis, knattspyrnustjóri íslendingaliðsins Stoke City, eftir að hafa skrifað undir árs framlengingu á samningi sínum við félagið, en hann hefði að öllu óbreyttu runnið út í sumar. "Í liðinu er góður kjarni leikmanna sem við byggjum á en við eigum von á því að missa nokkuð marga frá okkur í sumar. Vonandi náum við að leysa þá af með góðum leikmönnum sem færa okkur þennan litla liðsstyrk sem við þurfum til að komast í úrvalsdeildarklassa," bætti Pulis við. Það var um hádegisbilið í gær að Pulis skrifaði undir nýja samninginn en í gærmorgun birtist viðtal við hann í staðarblaði Stoke, The Sentinel, þar sem ekki er annað hægt en að segja að Pulis hafi verið á öndverðum meiði. Þar úthýsti hann íslensku stjórnarmönnunum hjá félaginu og þeim seinagangi sem viðhefst í vinnubrögðum þeirra. "Það verður að koma ýmsum hlutum á hreint svo að við vitum hvert við erum að stefna sem félag. Það verður að gerast núna en ekki þegar við hefjum undirbúningstímabilið í sumar," sagði Pulis. Svo virðist sem þetta hjálparkall hans hafi gert sitt gagn því örfáum klukkustundum síðar var hann kominn með nýjan samning í hendurnar."Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir félagið og ég er viss um að stuðningsmennirnir eru sammála um það. Liðið hefur sýnt stöðugar framfarir undir stjórn Pulis og þótt við séum vonsviknir með að eiga litla möguleika á úrvalsdeildarsæti getum við huggað okkur við það að þetta er í fyrsta sinn síðan 2002 sem við höfum á engum tímapunkti verið í fallhættu," sagði Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, við undirskrift samningsins í gær.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Fleiri fréttir „Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Holland - Japan | Hefja leik í hörkuriðli „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Sjá meira