Hlekkjuðu sig við vinnuvélar 19. júlí 2005 00:01
Átján erlendir mótmælendur stöðvuðu vinnu hluta starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun um rúmar tvær klukkustundir í gær með því að fara í óleyfi fótgangandi inn á vinnusvæðið og hlekkja sig við vinnuvélar og leggjast í veg fyrir vinnutæki. Lögreglan á Egilsstöðum fjarlægði mótmælendur. Þrettán voru handteknir mótspyrnulaust en áður en lögreglan kom höfðu fimm þeirra horfið af vettvangi. Helgi Jensson, fulltrúi sýslumannsins á Seyðisfirði, segir óljóst hvaða eftirmálar verði af aðgerðunum en það ráðist meðal annars af því hvort Impregilo leggi fram kæru. Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilo, segir líklegt að kæra verði lögð fram. "Við munum fara yfir þetta mál og athuga hvort hægt sé að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða svo að atvik af þessu tagi endurtaki sig ekki," segir Ómar. Birgitta Jónsdóttir, einn talsmanna mótmælendanna í tjaldbúðunum við Kárahnjúka, segir íslenska tjaldbúðafólkið ekki hafa staðið fyrir mótmælunum en þeir útlendingar sem tóku þátt í þeim gisti þó í tjaldbúðunum. "Þarna eru allir á eigin vegum en mér persónulega finnst ekkert athugavert við aðgerðir af þessu tagi svo fremi að ekki hljótist mannskaðar af," segir Birgitta.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Fleiri fréttir Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Sjá meira