Spá verðbólgu og launaskriði 6. september 2005 00:01
Samkvæmt verðbólguspá Greiningar Íslandsbanka er útlit fyrir 0,9% hækkun vísitölu neysluverðs á milli ágúst og september. Margt leggst á eitt og stuðlar að mikilli hækkun vísitölunnar að þessu sinni. Útsölulok ásamt hækkun eldsneytisverðs er helsta skýring hækkunarinnar. Íbúðaverð hefur hækkað áfram að undanförnu og hækkar það vísitölu neysluverðs í september en þó umtalsvert minna en síðustu mánuði þar sem dregið hefur úr verðhækkun á þessum markaði. Reiknað er með hækkun matvöruverðs í spánni í takti við þróun síðustu mánuðina. Hagstofan mun birta vísitöluna næst mánudaginn 12. september. Verðbólgan mun mælast 4,2% gangi spáin eftir og eykst úr 3,7%. Verðbólgan rýfur því á ný efri þolmörkin í markmiði Seðlabankans (4%) og þarf bankinn í framhaldinu að gera ríkisstjórninni skriflega grein fyrir áformum sínum til að ná tökum á henni. Um er að ræða fimmta mánuðinn á þessu ári sem verðbólgan er yfir þolmörkunum. Hins vegar má reikna með að verðbólgan hjaðni lítillega á næstu mánuðum og fari jafnvel aftur undir efri þolmörkin strax í október. Miðað við fast gengi krónunnar er útlit fyrir að verðbólgan yfir þetta ár reynist 3,6% og aðeins 3,1% þegar horft er yfir næsta ár. En Greining Íslandsbanka telur þó ólíklegt að krónan haldist jafn sterk og hún er núna fram á næsta ár. Óvissan liggur fremur í átt til aukinnar verðbólgu þegar horft er til næstu missera og til næstu ára. Eftirspurn er vaxandi í hagkerfinu og spenna hefur myndast á vinnumarkaði sem mun sennilega leiða til launaskriðs áður en langt um líður. Þá virðist gengi krónunnar líklegra til að lækka en hækka þegar horft er tvö ár fram í tímann. Ef miðað er við spá Greiningar Íslandsbanka um lækkandi gengi krónunnar á næsta ári þá er útlit fyrir um 5,3% verðbólgu á því ári og vaxandi verðbólgu á árinu 2007 samhliða frekari gengislækkun.
Fréttir Innlent Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira