Innlent

Andstaða við íbúðabyggð í Viðey

Viðeyingafélagið leggst gegn hugmyndum um byggingu íbúðabyggðar í Viðey og telur hana geta valdið óafturkræfum náttúruspjöllum á þessari náttúruperlu. Hins vegar hvetur stjórn félagsins borgaryfirvöld til að hrinda sem fyrst í framkvæmd þeirri uppbyggingu í Viðey sem fram kom í stefnumótun sem fjórir ráðgjafahópar hafa lagt til um framtíð eyjanna á sundunum. Þar er ekki gert ráð fyrir íbúðabyggð heldur að Viðey og aðrar eyjar á svæðinu verði útivistarsvæði og vettvangur fræðslu í sögu og náttúrufræðum. Þær verði einnig mikilvægur þáttur í menningartengdri ferðaþjónustu í borginni og aðgengilegar allan ársins hring. Helstu leiðir til að ná þessu markmiði að mati hópanna er að byggja upp fræðslusetur, gestastofu, þjónustumiðstöð, funda- og ráðstefnuaðstöðu, gistiaðstöðu, stígakerfi og bæta hafnaraðstöðuna. Jafnframt þessu bendir Viðeyjarfélagið borgaryfirvöldum á mikið landbrot í Viðey, gengt Sundahöfn og Gufunesi, sem brýnt sé að bregðast við hið fyrsta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×