Keflavík í úrslitin 29. mars 2005 00:01
Fjórði leikur ÍR og Keflavíkur í undanúrslitum Úrlvalsdeildarinnar í körfubolta í gær var ekki sérlega spennandi, þar sem Keflvíkingar léku á alls oddi og unnu sannfærandi sigur í Seljaskóla, 97-72. ÍR-ingar náðu sér aldrei a strik í leiknum og skoruðu aðeins 24 stig í fyrri hálfleik, þar sem Keflvíkingar hreinlega kafsigldu þá með stífri pressuvörn og ekki laust við að úrslit leiksins hafi verið að mestu ráðin í hálfleik. Í síðari hálfleik var mikill hiti leikmönnum og hart barist, en í síðasta leikfjórðungnum leyfðu þjálfararnir varamönnum sínum að ljúka leiknum, því úrslit hans voru þá löngu ráðin. Eiríkur Önundarson, fyrirliði ÍR var að vonum daufur í dálkinn eftir leikinn. "Ég vil nú bara byrja á því að biðja alla þessa áhorfendur sem komu hérna að styðja okkur afsökunar á slakri frammistöðu okkar í dag. Við bara stífnuðum allir upp og það var eins og okkur skorti kjark til að klára þetta. Þeir spiluðu auðvitað fína vörn, en við vorum bara lamdir utan undir og tókum því ekki. Keflvíkingar eru með hörku lið og mikla reynslu, en mér finnst fyrst og fremst ömurlegt að spila ekki betur fyrir alla sem komu að styðja okkur í kvöld." Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflvíkinga var brattur í leikslok og ánægður með sína menn. "Við skelltum hreinlega í lás á þá í öðrum leikhlutanum og þeir voru í vandræðum með að koma boltanum í leik. Ég hélt að þetta væri komið gott þegar við vorum komnir með sex stopp á þá í röð, en þetta hélt bara áfram og þá kom auðvitað sóknarleikurinn í kjölfarið,", sagði Gunnar, sem hrósaði ÍR-ingum fyrir góða frammistöðu og er bjartsýnn á að mæta Snæfellingum í úrslitunum. "Nú er bara að fara heim til Keflavíkur og taka Snæfell, hvort sem það verður 3-0 eða eitthvað annað, " sagði fyrirliðinn.
Körfubolti Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur í Þorlákshöfn Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Sjá meira