Kvótinn seldur til að fjármagna kaupin 20. nóvember 2005 07:00 Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims: "Það er ekki hægt fyrir útgerðarfyrirtæki að halda úti byggðastefnu."
Akureyri missti frá sér varanlega sem nemur um eða yfir sex þúsund tonna kvóta á síðustu tveimur fiskveiðiárum. Samkvæmt svari sjávarútvegsráðherra við spurningum Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, má rekja þetta að mestu leyti til sölu Brims hf. á kvóta. Auk þess hafa Samherji og Brim leigt frá Akureyri um sextán þúsund þorskígildistonn á sama tímabili. Ekki kemur fram í svarinu hvaða fisktegundir bera uppi þessi kvótaviðskipti en ætla má að í tilviki Samherja sé umtalsverður hluti viðskiptanna í uppsjávartegundum. Jóhann Ársælsson telur að eigendur Brims selji kvóta og leigi til þess að fjármagna kaupin á félaginu. "Svoleiðis er skotið stoðum undir kaupin sem voru óraunhæf miðað við rekstur fyrirtækisins," segir Jóhann. Hann bætir við að nú upplifi Akureyringar að kvótinn geti farið frá þeim eins og öðrum. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir að kvótinn fari milli nokkurra tengdra hlutafélaga. Á hans snærum séu til dæmis útgerðirnar Sólbakur og Tjaldur. "Í fyrra veiddum við nokkurn veginn upp í allar okkar heimildir á eigin skipum. Svar sjávarútvegsráðherra gefur villandi mynd. Fyrirtækin okkar eru oft að geyma kvóta hvert fyrir annað. Það breytir ekki öllu hvar skip okkar eru skráð. Það er ekki hægt fyrir útgerðarfyrirtæki að halda úti byggðastefnu," segir Guðmundur. Hann nefnir sem dæmi að nú sé Grindavík kvótahæsta höfn landsins og það sé vegna þess að skip eru skráð þar. "Okkar stefna er sú að við reynum að vinna okkar aflaheimildir en það er áramunur á þessu. Sum árin tökum við kvóta á leigu en önnur ár leigjum við frá okkur." Guðmundur þvertekur fyrir það að hann selji kvóta til þess að fjármagna kaupin á Brimi. "Það eru margir hér fyrir norðan sem hafa áhyggjur af því að Brim sé að færa starfsemina vestur á bóginn. Ég er alveg sannfærður sjálfur um að Samherji er ekkert að selja frá sér aflaheimildir. Þeir hafa mjög mikinn áhuga á síldinni," segir Sverrir Leósson,útgerðarbóndi á Akureyri.
Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira