Innlent

Fær tennur bættar

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Þórhallur Ölver Gunnlaugsson Þórhallur varð fyrir líkamsárás á Litla-Hrauni og fær nú bætur frá ríkinu. fréttablaðið/gva
@Mynd -FoMed 6,5p CP:Þórhallur Ölver Gunnlaugsson Þórhallur varð fyrir líkamsárás á Litla-Hrauni og fær nú bætur frá ríkinu. fréttablaðið/gva

Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni, sem gengur nú undir nafninu Þór Óliver, voru í gær dæmdar skaða- og þjáningabætur í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni í maí 2002.

Forsaga málsins er að samfangi Þórhalls veittist að honum inni í fangaklefa með þeim afleiðingum að tennur í Þórhalli brotnuðu ásamt því að hann hruflaðist og marðist.

Kröfur Þórhalls um skaðabætur frá íslenska ríkinu byggjast á því að hann hafi ekki fengið viðunandi læknismeðferð í kjölfar árásarinnar. Lögmaður íslenska ríkisins mótmælti kröfum Þórhalls á þeim forsendum að ósannað væri að hann hefði hlotið áverkana í umræddri árás. Hann hefði fengið alla þá umönnun sem hann ætti rétt á.

Dómurinn viðurkennir að Þórhallur eigi rétt á skaðabótum frá árásarmanninum og jafnframt eigi hann rétt á þjáningabótum frá íslenska ríkinu vegna þess að hann hafi ekki fengið viðhlítandi tannlæknaþjónustu í kjölfar árásarinnar. Þórhallur er refsifangi á Litla-Hrauni en hann var sakfelldur fyrir að hafa myrt Agnar W. Agnars­son sumarið 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×