Innlent

Konur leggja niður störf í dag

Á kvennafrídeginum 1975
Á kvennafrídeginum 1975

Kvennafrídagurinn er í dag og af því tilefni munu fjölmargar konur leggja niður störf klukkan rétt rúmlega tvö en þá hafa þær unnið fyrir launum sínum ef litið er til þess að atvinnutekjur þeirra eru um 64 prósent af atvinnutekjum karla. Klukkan þrjú hefst svo kröfuganga frá Skólavörðu­holti og niður að Ingólfstorgi þar sem efnt verður til baráttufundar.

Vonast er til að á bilinu 30 til 50 þúsund konur mæti til fundarins. Það er því viðbúið að karlmenn finni á eigin skinni hversu mikilvægt vinnuframlag kvenna er.

Flestum bankaútibúum verður lokað klukkan tvö sem og leikskólum og öðrum vinnustöðum þar sem konur eru í miklum meirihluta.

Samkvæmt upplýsingum frá Félagi kvenna í atvinnurekstri er atvinnuþátttaka kvenna hvergi í heiminum meiri en hér á landi. Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn á afmælisdegi Sameinuðu þjóðanna 24. október 1975. Þá söfnuðust um 25 þúsund íslenskar konur saman á Lækjartorgi á miklum baráttufundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×