Innlent

Tíu milljónir í sjóðinn

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra Halldór leggur til við ríkisstjórn sína að komið verði á laggirnar sérstökum Jafnréttissjóði.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra Halldór leggur til við ríkisstjórn sína að komið verði á laggirnar sérstökum Jafnréttissjóði.

Ríkisstjórnin hyggst í tilefni kvennafrídagsins veita tíu milljónum króna til stofnunar Jafnréttissjóðs. Markmið sjóðsins er að tryggja að hér á landi verði hægt að vinna að vönduðum kynjarannsóknum, en talið er að svokallaðar kynjarannsóknir geti orðið til þess að bæta stöðu kvenna og breyta karlamenningu með það að augnamiði að styrkja framgang jafnréttis kynjanna.

Halldór Ásgrímsson lagði fram tillögu um þetta á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn var. Í erindi Halldórs á ríkisstjórnarfundinum segir að aðrar þjóðir líti til Íslands með áðdáun vegna margra og merkra forystuskrefa í jafnréttismálum sem hér hafi verið stigin.

Forsætisráðherrann leggur til að fyrst um sinn verði áherslan lögð á að veita fé til rannsókna á stöðu kvenna á vinnumarkaði, bæði hvað varðar launakjör og einnig á áhrif íslenskrar löggjafar á konur á vinnumarkaði, svo sem með rétti karla til fæðingarorlofs. Halldór leggur til að sjóðurinn muni heyra undir forsætisráðuneytið. Árið 2005 er sögulegt í jafnréttisbaráttu kvenna meðal annars fyrir það að 90 ár eru liðin frá því að konur öðluðust kosningarétt til Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×