Pysjudauði vegna ætisskorts 3. september 2005 00:01
Dauðar pysjur hafa fundist á að minnsta kosti tveimur stöðum í Vestmannaeyjum. Ætisskortur og norðanáhlaup í vikunni sem leið er meðal þess sem hrakið hefur lundann úr Eyjum. Pysjurnar sitja eftir ófullburða og talsvert færri en vanalega. Eyjamenn segjast taka eftir óvenjufáum pysjum þetta síðsumarið og eins og komið hefur fram í fréttum Stöðvar 2 telur Kristján Egilsson hjá Náttúrugripasafni Vestmannaeyja að kenna megi köldu vori og litlu æti um fáar og ófullburða pysjur. Kristján Hilmarsson, sjómaður og bóndi í Eyjum, varð var við óvenjulega sjón við smölun á dögunum. Hann segir að féð hans sé í lundabyggðum en þar hafi verið mikið af dauðum pysjum um allar brekkur. Þá segir hann einnig mikið vera um pysjudauða suður í Súlnaskeri og að við veiðarnar taki hann eftir mun minna af sandsílum í kringum eyjarnar en vanalega, en sandsíli er aðalfæða lundans. Spurður um sumrin á undan segir Kristján sumarið í fyrra hafa verið mjög gott. Þá hafi mikið af sandsílum gengið inn á Álfseyjarbleyðu og austur í Pétursey en ekkert sé af þeim núna. Kristján hjá Náttúrugripasafninu taldi að norðanhretið fyrir nokkrum dögum hefði orðið til þess að lundinn hraktist úr Eyjum fyrr en ella og hafi því pysjurnar setið eftir í holunum. Vanalega fer lundinn ekki fyrr en pysjan er tilbúin, þ.e. fullburða, en nú er töluvert um að ófullburða pysjur finnist í Eyjum og eiga þær margar hverjar sér ekki viðreisnar von nema þeim verði bjargað af litlum peyjum og pæjum í bænum.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira