Vill frekar spennu en atvinnuleysi 12. nóvember 2005 07:30 Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins Halldór fór víða í ræðu sinni í gær og leitaði skýringa á litlu fylgi flokksins. Einnig sagði hann að Seðlabankinn hefði engar forsendur til að halda áfram að hækka vexti.
Halldór sagði það eðlilegt að gegnið sé hátt um þessar mundir vegna þess hversu þjóðin hefur ætlað sér mikils. "Við höfum einmitt lagt áherslu á það að atvinna sé mikil og viljum við ekki frekar meiri spennu en atvinnuleysi með öllum þeim hörmungum sem því fylgir fyrir heimilin í landinu. Ef ég mætti velja þarna á milli þá vel ég frekar mikla spennu og uppbyggingu heldur en atvinnuleysi," sagði Halldór. Hann sagðist skilja áhyggjur fólks vegna hás gengis og verðbólgu en nú væru vextir húsnæðislána að lækka og eins gengið. "Og að mínu mati er engin forsenda fyrir því, eins og sakir standa, að Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti um næstu mánaðamót," sagði hann. Halldór sagðist einnig vera bjartsýnn á það að niðurstaða næðist í viðræðum um kjarasamningana svo að þeir héldust með eðlilegum hætti. Halldór leitaði skýringa á því af hverju fylgi við Framsóknarflokkinn mældist jafn lítið í skoðunarkönnunum og raun ber vitni um þessar mundir. "Það verður að segjast alveg eins og er að staða Framsóknarflokksins í skoðunarkönnunum er ekki ásættanleg." "Er það vegna þess að við höfum staðið okkur illa?" spurði Halldór og svaraði sjálfur neitandi og taldi upp fjölmörg dæmi máli sínu til stuðnings. "Ég tel hinsvegar að við séum sem flokkur og einstaklingar ekki nægilega stolt af okkar verkum," sagði hann sem eina af skýringunum og bætti við að Framsóknarmenn væru feimnir og hógværir en tækju þó oftast við sér skömmu fyrir kosningar. Aðra skýringu sagði hann vera þá að Framsóknarmenn hefðu ekki komið sínum málum nógu mikið á framfæri og skýrt nægilega vel frá árangri sínum. Hann sagði mikið liggja við að flokknum takist vel til í sveitarstjórnarkosningunum í vor því ef svo verði ekki muni menn taka því sem svo að hann sé ekki til stórræðanna líklegur í Alþingiskosningum.
Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira