Telja kostnaðinn landsbyggðarskatt 25. ágúst 2004 00:01
Reykjavíkurborg þarf ekki að borga löggæslukostnað vegna Menningarnætur, en aukakostnaður lögreglunnar var tæplega ein milljón króna. Þeir sem halda Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þurfa hins vegar að borga allan löggæslukostnað sem er yfir þrjár milljónir króna. Eyjamenn kalla þetta landsbyggðarskatt og segja skemmtanir á landsbyggðinni ekki sitja við sama borð og hátíðarhöld í höfuðborginni. Lögreglan í Reykjavík hefur nú tekið saman kostnað sem hlaust af aukalöggæslu vegna Menningarnætur Reykjavíkur um síðustu helgi. Ingimundur Einarsson, varalögreglustjóri, segir að auk hinna 20 lögregluþjóna sem voru á helgarvakt hafi 35 lögregluþjónar verið kallaðir á aukavakt. Alls hafi þeir skilað rúmum 300 klukkustundum í aukavinnu og að aukakostnaður sé því um 900 þúsund krónur. Þennan kostnað þarf lögreglan sjálf að bera, þar sem Reykjavíkurborg þarf ekki að sækja um skemmtanaleyfi fyrir Menningarnóttinni, þar sem talið er að hundrað þúsund manns hafi verið. Sama máli gegnir um fótboltalandsleikinn við Ítali í síðustu viku, þar sem 20 þúsund manns voru samankomnir. Hann telst ekki skemmtun og því þurfa skipuleggjendur ekki að greiða fyrir löggæslukostnað. Öðru máli gegnir um margar aðrar skipulagðar skemmtanir. Til að mynda þarf að sækja um skemmtanaleyfi fyrir Þjóðhátíðina í Eyjum og þar þurfa skipuleggjendur að greiða löggæslukostnað úr eigin vasa. Hann var þrjár milljónir í fyrra og verður jafnvel hærri í ár. Eyjamenn eru ekki hressir. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, segir að skipuleggjendur Þjóðhátíðar vilji að dómsmálaráðherra verði einfaldlega að veita Sýslumanni það fé sem þurfi til að gæta Vestmannaeyjarbæ allan ársins hring. Hann segist líta á þennan löggæslukostnað sem landsbyggðarskatt.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira