Hönnunargalla um að kenna 29. ágúst 2004 00:01
Hönnuðir viðbyggingar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri kannast ekki við þann hönnunargalla á byggingunni sem nefndur er í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðandi segir það hins vegar engan misskilning að hönnunargalli hafi verið ein af ástæðum þess að viðbyggingin stóð ónotuð í áratug. Ástæður þess að viðbyggingin við Fjórðungssjúkrahúsið hefur að mestu staðið ónotuð í hartnær áratug eru, að mati Ríkisendurskoðunar, annars vegar fjárskortur og hins vegar hönnunargalli. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagði forstjóri Fjórðungssjúkrahússins að ljóst væri að rými vegna rúma hefði verið vanreiknað. Í símaviðtali við fréttastofu sagði Garðar Halldórsson, fyrrverandi húsameistari ríkisins sem hafði umsjón með hönnun byggingarinnar, að gagnrýni Ríkisendurskoðunar væri hreinn misskilningur en vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Undir þetta tekur Birgir Breiðdal arkitekt sem teiknaði álmuna og segir hann gagnrýni Ríkisendurskoðunar vera rógburð. Hann segir að haft hafi verið fullt samráð við bæði heilbrigðisráðuneytið og forsvarsmenn spítalans á öllum stigum málsins og því sé gagnrýnin furðuleg í meira lagi. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir hins vegar að gagnrýnin sem fram komi í skýrslunni eigi algerlega við rök að styðjast og ljóst sé að hönnunargallinn spili sína rullu í því að byggingin stóð ónotuð svo lengi sem raun ber vitni. Endanlega sé ábyrgðin þó heilbrigðisyfirvalda þar sem allt bendi til þess að farið hafi verið af stað með byggingu sem, þegar til kastanna kom, var svo ekki þörf fyrir.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira