Forsetinn villti á sér heimildir 29. ágúst 2004 00:01
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í upphafi vinum Dorritar Moussaief að hann væri stjórnunarsérfræðingur til að leyna því hver hann var í raun og veru. Þetta kemur fram í ítarlegri grein um Dorrit sem birtist í breska dagblaðinu The Sunday Times í dag og þar kennir ýmissa forvitnilegra grasa. „Ísdrottningin er mætt“ er yfirskrift greinarinnar sem fjallar um lífshlaup Dorritar frá unga aldri. Í greininni kemur fram að Ólafur Ragnar hafi gengið á eftir Dorrit með grasið í skónum og fyrst haft erindi sem erfiði eftir að hann bjargaði henni úr klóm tollgæslunnar í Bandaríkjunum. Eftir það var ekki aftur snúið en í eitt ár reyndu þau sitt ítrasta til að leyna sambandi sínu. „Slys eða slysið eins og Íslendingar kalla atvikið“, segir í greininni, „varð til að breyta því“. Þá er vísað til hestaslyssins margfræga þegar Ólafur Ragnar handleggsbrotnaði. Dorrit segir sjálf að á þeim tíma hafi Ólafur Ragnar verið orðin leiður á því að hún var ætíð annað hvort talin vera skiptinemi eða vinkona dætra hans svo að lokum varð sambandið opinbert og parið trúlofaðist. Þá tók við tveggja ára trúlofun og í greininni segir að margir Íslendingar hafi verið orðnir nær úrkula vonar um að þau myndu á endanum giftast. Það sem réð úrslitum var afmælisgjöf Dorritar til Ólafs Ragnars þegar hann varð sextugur. Hún gaf honum armbandsúr sem honum líkaði ekki við. Hún spurði þá hvað hann vildi fá og hann svaraði því til að helst vildi hann að hún játaðist honum í hjónabandi og það varð úr. Blaðamaður Sunday Times fjallar ítarlega um tengslanet Dorritar og því er haldið fram að hún þekki nánast alla sem eru þess virði að þekkja; Bill Gates, Bill Clinton, Sean Connery, Michael Caine og Michael Bloomberg svo örfáir séu nefndir. Blaðið gerir því skóna að þessi gríðarmiklu tengsl Dorritar séu afar mikilvæg fyrir Ísland og í sameiningu séu Dorrit og Ólafur Ragnar gríðarlega áhrifamikið par. Dorrit segir sjálf að hún líti svo á að hennar hlutverk sem forsetafrú sé að vekja athygli á landinu. En ekki eru allir eins hrifnir. Blaðið vitnar í íslenskan rithöfund sem ekki vill láta nafns síns getið sem nefnir það að Dorrit sé gyðingur og sterkefnuð en segir svo að það skipti kannski ekki öllu máli, svo lengi sem hún borgi skatta á Íslandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira