Innlent

1 árs gamalt barn brenndist illa

Eins árs gamalt barn í Reykjanesbæ brenndist illa og var flutt á slysadeild í Reykjavík í gær eftir að þriggja ára gamalt barn hafði skrúfað frá heitu vatni og lét renna í baðvask þar sem yngra barnið sat. Víkurfréttir greina frá þessu.  Tilkynnt var um slysið á sjötta tímanum í gær og var barnið flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Læknir var sendur með sjúkrabílnum. Frekari upplýsingar um slysið er ekki að hafa á þessari stundu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×