Strokufangi gaf sig fram 31. ágúst 2004 00:01 MYND/Vísir
Fangi sem strauk af Litla Hrauni í gærkvöld hringdi í morgun í Fangelsismálastofnun og skilaði sér skömmu síðar í Hegningarhúsið. Deildarstjóri Fangelsismálastofnunar segir of snemmt að segja til um hvort öryggisreglur fangelsins verði hertar, en bendir á að afar fátítt sé að fangar strjúki úr fangelsum á Íslandi. Maðurinn sem er 28 ára gamall og hóf afplánun 22ja mánaða dóms fyrir þjófnaði í mars síðastliðnum strauk af Litla Hrauni um kvöldmatarleyti í gær. Erlendur Baldursson, deildarstjóri hjá fangelsismálastjóri sagði í samtali við fréttastofu í morgun að maðurinn hefði verið á leið í íþróttahúsið þegar hann hvarf. Leit var fljótlega hafinn að honum innan veggja fangelsisins, en þegar ljóst var að maðurinn hafði flúið af svæðinu var haft samband við lögreglu. Lögreglan á Selfossi, í Reykjavík og Hafnarfirði settu þegar upp vegatálma á öllum leiðum til og frá fangelsinu og stöðvuðu alla bíla sem áttu leið um en fundu ekki manninn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu á Selfossi sást til mannsins í höfuðborginni um klukkan 11 í gærkvöldi og var leit að honum þá hætt. Erlendur segir að málið hafi leysts með farsællegum hætti í morgun. Pilturinn hafi hringt strax í morgun þegar skiptiborðið opnaði. Eftir það hafi hann sjálfur komið niður í hegningarhús. Hann mun fara aftur í klefa sinn á Litla-Hrauni og mun verða rannsakað hvernig hann slapp út. Erlendur segir of snemmt að segja hvort öryggisreglur Litla-Hrauns verði endurskoðaðar en ekkert fangelsi í heiminum sé svo vel byggt að ekki sé hægt að komast þaðan eftir einhverjum leiðum. Hann sagði þó fanga á Litla-Hrauni hafa verið nokkuð prúðir og þetta væri í fyrsta sinn í sex ár, sem nokkur stryki úr fangelsinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira