Enn lifir í glæðum Arsenal 19. desember 2004 00:01 "
Við áttum góðan leik fram að markinu og hefðum átt að leggja harðar að okkur en sem fyrr fáum við okkur ódýr mörk," sagði Greame Souness, stjóri Newcastle, eftir 3-1 tapleik liðsins gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í gær. Tóku leikmenn Liverpool þrjú tiltölulega auðveld stig og auðvelduðu Souness ekki starf sitt. Hefur þeim farið fjölgandi undanfarið sem vilja kappann burt enda gengi liðsins undir hans stjórn verið slakt og var tapið á Anfield ekki til að laga stöðuna. Var Souness sjálfur fyrir miklum vonbrigðum. "Markið okkar var fallegt og vel að því staðið en tvö af mörkum Liverpool voru af ódýrari taginu og því miður er þetta ekki í fyrsta sinn sem við fáum slík mörk á okkur." Liverpool leit ekki út fyrir að vera til stórræðanna þegar leikurinn hófst en fyrsta mark Newcastle, sem Patrick Kluivert skoraði, virtist hafa kveikt neista sem ekki sást fyrr en þá. Aðeins þremur mínútum eftir markið hafði Liverpool jafnað þegar Titus Bramble skoraði sjálfsmark eftir hornspyrnu Kewell og öðrum þremur mínutum eftir það komst Liverpool yfir með marki Neil Mellor. Í seinni hálfleik var Liverpool allan tímann líklegra til að bæta við marki og á 61. mínútu tókst Baros að skora eftir frábæra sendingu frá Kewell. Arsenal mátti teljast heppið að fara frá Fratton Park í Portsmouth með stigin þrjú. Leikmenn Portsmouth báru litla virðingu fyrir Arsenal og ógnuðu marki aðkomumannanna nokkrum sinnum strax í byrjun leiksins. Þegar leið á leikinn fór leikmönnum Arsenal að ganga betur að sækja fram og á 75. mínútu fékk Sol Campbell frið fyrir utan vítateig Portsmouth og lét ríða af skot sem hafnaði í netinu. Arsenal er þá fimm stigum á eftir toppliði Chelsea eftir sigurinn og einu stigi á undan Everton í þriðja sæti.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Fótbolti Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Körfubolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Fleiri fréttir Sex hafa ekkert spilað á EM Sjáðu strákana á N1 mótinu sýna snilli sína „Þetta gerist rosa hratt“ Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sengun í fantaformi í sumarfríinu Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Dagskráin í dag: Íslenskir Evrópuleikir Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sengun í fantaformi í sumarfríinu Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Djokovic í undanúrslit í fjórtánda sinn Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid United boðið að skrapa botninn á tunnunni Jokic framlengir ekki að sinni Samþykkja tilboð Tottenham í Kudus Frakkar sýndu styrk sinn Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Ancelotti dæmdur fyrir skattsvik Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Englendingar hrukku heldur betur í gang Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Lyon heldur sæti sínu í deildinni eftir allt saman Sjá meira