Áfram mjög hlýtt 12. ágúst 2004 00:01
Áfram verður mjög hlýtt loft yfir landinu þrátt fyrir að heldur fari að draga úr hlýindunum, fyrst vestast á landinu. Á sunnudag er gert ráð fyrir svalara veðri og auknum líkum á skúrum. Veðurblíðan síðustu daga einsdæmi, segir veðurfræðingur. "Það verður áfram mjög hlýtt loft yfir landinu," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. Sigurður á þó von á að heldur dragi úr hlýindunum vestast á landinu í dag. Sigurður á þrátt fyrir það von á að hitinn nái víða 18-26 stigum á stöðum þar sem hvorki þoka né hafgola geri sig gildandi. "Það sem breytist helst er að líkurnar á að Norðlendingar njóti meiri hlýinda aukast," segir Sigurður og bætir við að þar fái Norðlendingar sinn skerf af hitabylgjunni sem þeir hafi hingað til farið varhluta af að nokkru leyti. Sigurður býst áfram við sólríku veðri, síst þó við vesturströndina. "Ég á frekar von á því að við séum að sjá fyrir endann á þessu geggjaða veðri," segir Sigurður en segir þó veðurhorfur helgarinnar góðar, bjart verði með köflum og hæglætisveður. Á sunnudaginn er þó gert ráð fyrir að nokkuð kólni í veðri og líkur á skúrum aukist. Sigurður segir veðrið sem leikið hefur um landsmenn síðustu daga einsdæmi og líklegt að liðið geti tíu til hundrað ár áður en slíkt endurtaki sig. "Hins vegar má ekki gleyma því að við erum að núna að upplifa meiri hlýindi en verið hafa og erfitt er að spá um hvort sú þróun heldur áfram." "Fólk syndir hér í öllum fossum til þess að kæla sig niður," segir Sonja Þórsdóttir, starfsmaður upplýsingamiðstöðvarinnar í Skaftafelli, en þar fór hitinn yfir 29 stig í vikunni. Sonja segir góða stemningu ríkja í góða veðrinu. "Íslendingarnir eru náttúrlega allir mjög ánægðir þrátt fyrir að einn og einn erlendur ferðamaður kvarti yfir veðrinu," segir Sonja. Útlendingarnir séu margir hverjir að flýja hitann á heimaslóðum og búist ekki við svipuðum hita hér á landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira