Flóðahætta jafnvel liðin hjá 12. ágúst 2004 00:01
Yfirborð Jökulsár á Dal lækkar óðum og telja menn að flóðahætta sé jafnvel liðin hjá. Enn er ekki vitað af hverju frárennslisgöngin fluttu ekki eins mikið vatn og þeim var ætlað. Hlýindi og sólskin undanfarna daga hafa valdi mikilli sólbráð í Brúarjökli sem áin rennur undan, í gegnum vinnusvæðið við Kárahnjúka og ofan í frárennslisgöng sem eiga að halda ánni frá stíflugerðarsvæðinu. Göngin hafa ekki annað rennslinu svo vinna við stíflugerðina stöðvaðist í nokkra daga. Stíflan hefur verið hækkuð um nítján metra. Sú viðbót á að tryggja að þótt meira rennsli verði í ánni flæði ekki yfir vinnusvæðið. Brúin yfir ána hefur nokkrum sinnum farið á kaf í flóðunum og jafnvel verið í hættu. Klukkan fjögur í dag var rennsli árinnar svipað og á sama tíma í gær en menn gera sér þó vonir um að hámarkinu sé náð og vatnavextirnir verði ekki meiri að sögn Haralds B. Alfreðssonar, framkvæmdaeftirliti Landsvirkjunar. Hann segir 830 rúmmetra rennsli hafa verið í gær og það verði væntanlega eitthvað minna í kvöld, og jafnvel það „lítið“ að ekki flæði yfir brúna. Veðurfræðingar segja að loftmassinn sé að kólna niður þannig að ekki sé von á meira af hlýju lofti inn yfir jökulinn að sögn Haralds. Þó taka menn með í reikninginn að nokkurs konar tappi gæti hafa myndast undir jöklinum svo vatn gæti skyndilega flætt fram. Boruð hafa verið göng niður í frárennslisgöngin til að tappa lofti úr þeim og hefur það aukið rennslisgetuna. Enn vita menn þó ekki nákvæmlega hvað veldur því að göngin taka ekki við eins miklu og reiknað hafði verið út.
Fréttir Innlent Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira