Krían sækir í flugvöllinn 12. ágúst 2004 00:01
Mikið er um kríu á og við flugbrautina í Grímsey og kemur fyrir að árekstrar fugla og flugvéla verða í aðflugi að brautinni. Ragnhildur Hjaltadóttir, umboðsmaður Flugfélags Íslands í Grímsey, segir þetta þó tiltölulega fátítt en veit um eitt nýlegt tilvik þar sem farþegum lítillar flugvélar brá illilega þegar fuglar skullu á framrúðu vélarinnar. "Ég er ekki hissa á að fólki bregði. Þetta er hins vegar bara kría og hún er alveg skaðlaus. Þetta er hins vegar alltaf vandamál þegar líður á sumarið. Það er keyrt um brautina og fuglinn hvekktur til að hann sé fljótari að fara þegar hann heyrir í flugvélinni, en annað slagið lætur hann sér því miður ekki bregða," segir Ragnhildur. Þegar ekið er um brautina lyftir fuglinn sér og sest strax aftur, en hefur þá yfirleitt með vara á sér á eftir og er fljótari upp þegar flugvélin kemur. Flugmennirnir sæta þá lagi og skjóta sér undir fuglagerið. "Þetta kemur helst upp þegar unginn er orðinn fleygur og farinn að sækja í flugbrautina," segir Ragnhildur, en hún telur að á sólríkum dögum hitni malbikið svo á vellinum að fuglinn sæki í notalegan ylinn. "Fuglar eru illviðráðanlegir og erfitt að stjórna flugi þeirra þótt við gjarnan vildum," segir Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar. "Ég er ekki viss um að vandinn sé meiri í Grímsey, en annars staðar. Þarna er auðvitað fullt af sjófugli. Það er reynt að fæla þá burt með óhljóðum og akstri bíla, en með misjöfnum árangri." Heimir telur hættuna ekki meiri í Grímsey en annars staðar af þessum sökum. "Það er ekki gott að fá fugla í flugvélar, en þær eiga nú að þola það. Flugmenn vita svo auðvitað af hættunni og gera ráð fyrir henni." Heimir Már segir ákveðin vandamál fólgin í því að fæla burt fugla, því hann venjist hljóðunum sem notuð eru til fælingar. "Svo er náttúrlega skotinn fugl sem ekki er friðaður og má skjóta, svo sem sjófugl, með það fyrir augum að fæla hann frá því að koma. Það er fugl við alla flugvelli landsins. Flugmenn vita af þessu og flugvallarstarfsmenn gera hvað þeir geta til að fæla hann burt."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira