Drengur brenndist í Laugarvatni 12. ágúst 2004 00:01
Engar merkingar hafa verið við Laugarvatn til að vara fólk við hitalaugum sem geta myndast fyrirvaralaust. Ungur drengur brenndist á fæti þegar hann var að vaða í fjöruborðinu þar í gærkvöldi. Drengurinn, sem er þriggja ára, var ásamt foreldrum sínum á bekk við baðströndina þegar snáðinn ákvað að kanna nánar fjöruborðið. Svo illa vildi til að hitaauga hafði myndast nákvæmlega á þeim stað og drengurinn brenndist illa. Hjúkrunarkona á staðnum gerði að sárum drengsins til bráðabirgða en sjúkrabíll var þegar sendur eftir honum frá Selfossi og til öryggis var neyðarbíll sendur frá Reykjavík.Gert var að sárum hans á brunadeild Landspítalans við Hringbraut. Drengurinn var útskrifaður strax í gær en læknar segja hann hafa hlotið grunnan annars stigs bruna. Ekki var hægt að segja til um hvort einhver varanlegur skaði hlytist af. Engar merkingar voru á þeim stað sem drengurinn brenndist og segir Gústaf Adolf Björnsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Íslands, að merkingar sem eitt sinn voru þar hafi týnst með tímanum. Mikill fjöldi fólks var á Laugarvatni í gær en hins vegar varð enginn annar var við þennan varasama blett í fjörunni. Gústaf segir að skerpt verði á merkingum eftir þetta leiðindaatvik. Þá segir hann að þar sem svæðið sé náttúrulegt megi búast við stöðugum breytingum. Hann segir fólk vera á eigin ábyrgð við vatnið og brýnir fyrir því að fara varlega. Til að mynda sé góð regla að vera í sandölum þegar vaðið er út í vatnið. Lögreglan á Selfossi sér um rannsókn slyssins. Þar segjast menn ekki vita til að hægt sé að draga nokkurn til ábyrgðar en fyrirbyggja verði að slíkt geti endurtekið sig.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira