Evrópa er vaxtarsvæði Samherja 8. september 2004 00:01
Samherji keypti í vikunni ráðandi hluti í sjávarútvegsfyrirtækjum í Bretlandi og Þýskalandi. Kaupverðið var nálægt tveimur og hálfum milljarði króna. Þar með á Samherji fjögur útgerðarfélög innan Evrópusambandsins, tvö í Bretlandi, eitt í Póllandi og eitt í Þýskalandi. Starfsmenn félaganna fjögurra eru á annað hundrað, þau gera út fimm skip og eru með tæplega þriggja milljarða króna ársveltu. Félögin eiga tuttuguþúsund tonna þorskígildiskvóta í sameiginlegum kvóta Evrópusambandsins. Við það verður Samherji langstærsta útgerðarfélag landsins með rúmlega fjörutíuþúsund þorskígildistonna kvóta, þar af rúmlega 25 þúsund þorskígildistonn á Íslandsmiðum. HB Grandi er stærsta útgerðarfélagið innanlands með tæp 28 þúsund þorskígildistonn en engan kvóta í Evrópusambandinu. Fjárfestingar Samherja í Evrópu eru ekki nýjar af nálinni. Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að fjárfestingar félagsins í Evrópu megi rekja um áratug aftur í tímann. Frekari fjárfestingar þar séu fyrirhugaðar, þá í sölufyrirtækjum og fiskvinnslu. Aðspurður um ástæðu þess að félagið leiti út fyrir landsteinana segir hann að Samherji hafi náð svokölluðu kvótaþaki hér innanlands. Það þýðir að félagið megi ekki safna meiri kvóta í íslenskri landhelgi á sínar hendur vegna takmarkana í lögum. Þetta sé því eina leiðin fyrir félagið til að vaxa. Kvótaþak er ekki fyrir hendi innan Evrópusambandsins, en þrátt fyrir það hyggja forsvarsmenn félagsins ekki á frekari kaup á útvegsfyrirtækjum. Friðrik segir það á margan hátt svipað að standa í útgerð í Evrópusambandinu og hér á landi. Það sé kominn vísir að kvótakerfi innan sambandsins og því sé hægt að gera áætlanir fram í tímann. Hann segir rekstrarliði marga þá sömu en engu að síður sé óhagstæðara að gera út frá Íslandi en Bretlandi, þar sem kostnaður sé lægri. Samherji njóti þó ekki margumræddra styrkja Evrópusambandsins, enda stundi skip félagsins úthafsveiðar sem falla ekki undir styrkjakerfið.
Fréttir Innlent Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira