Konungur furðar sig á uppganginum 8. september 2004 00:01 "
Mesti munurinn á fyrstu heimsókn minni hingað til lands og þessari er hvað uppgangurinn hefur verið mikill á Íslandi í millitíðinni," sagði Karl Gústaf Svíakonungur á blaðamannafundi sem konungshjónin héldu síðdegis í gær. Þá var annasamur dagur á enda hjá hjónunum en í dag sækja þau Akureyringa heim. Aðspurður sagðist konungur furða sig á þeim mikla vexti sem orðið hefði á þeim tæplega 30 árum sem liðin eru síðan hann kom fyrst hingað til lands. "Hér hefur mikið breyst frá þeim tíma og miklar framfarir orðið og það er afar ánægjulegt að verða vitni að slíku og vona ég að Íslendingar haldi áfram á sömu braut. Þessir tveir dagar hafa verið afar fróðlegir og mikið að sjá og gera en mér þótti afar fróðlegt að sitja ráðstefnuna um loftslagsbreytingarnar í Háskólanum." Silvía drottning sagði för sína á Barnaspítala Hringsins og í Barnahúsið verulega fræðandi en hún óskaði sérstaklega eftir því að kynna sér starfsemi Barnahússins áður en hingað kom. Karl Gústaf vildi ekki tjá sig mikið um hvalveiðar Íslendinga en Svíar eru í hópi þeirra þjóða sem hvað mest hafa mótmælt áframhaldandi hvalveiðum. Hann sagðist hvorki hafa rætt það við forsetann né aðra embættismenn hér á landi. Talsvert fát kom á konunginn þegar hann var spurður út í þær sögusagnir í Svíþjóð að unnusti Victoríu krónprinsessu hefði beðið hennar en sá er víst í litlu uppáhaldi hjá Karli. Eftir vandræðalega þögn svaraði Silvía drottning því til að eingöngu væru um sögusagnir að ræða og ekkert annað.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira