Telur gas valda riðusjúkdómum 8. september 2004 00:01
Nýjar kenningar um orsakir riðuveiki eru komnar fram í kjölfar sauðfjárriðu sem upp kom á bænum Árgerði í Skagafirði í sumar. Guðbrandur Jónsson, sem vinnur að rannsóknum tengdum hagnýtingu lífræns úrgangs við metangasframleiðslu, telur riðu orsakast af gasmengun frá dýraúrgangi. Guðbrandur segir mælingar hafa leitt í ljós eiturgas í fjárhúsinu í Árgerði. Í fjárhúsinu hafði um skeið runnið vatn í flórinn en "biogasgerjun" segir hann eiga sér stað þegar vatn liggur með mykju í einn til tvo mánuði. Kannanir á áhættuþáttum gasvinnslu, segir Guðbrandur, hafa leitt í ljós mjög hættulegar gastegundir á borð við brennisteinsvetni, köfnunarefniskoltvísýring og kolsýring. "Í uppgufun frá þessu er svo ammoníumgas, kolsýringur og metan sem ryður í burt súrefni þannig að kindurnar verða fyrir súrefnisskorti." segir hann. Yfirdýralæknir telur kenningar Guðbrands ekki standast, en að sögn Víðis Kristjánssonar, deildarstjóra á efna- og hollustuháttadeild Vinnueftirlitsins, stefnir í að gerðar verði rannsóknir á mögulegri gasmengun frá dýraúrgangi til sveita. Hann segir slíkar rannsóknir þó munu verða kostnaðarsamar og ákvörðun um þær verði tekin í stjórn Vinnueftirlitsins. Víðir segir hins vegar möguleg tengsl gasmengunar og riðu í dýrum alveg fyrir utan verksvið Vinnueftirlitsins. "En við höfum haft áhyggjur út af svona mengun á bændabýlum enda eru slík tilfelli vel þekkt."
Fréttir Innlent Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Sjá meira