Mikill ávinningur af göngunum 19. október 2004 00:01
Árlegur ávinningur Vesturlands vegna Hvalfjarðarganga nemur hálfum milljarði króna. Þá má rekja átján prósenta hækkun á fasteignaverði á Akranessvæðinu beint til Hvalfjarðarganganna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn á áhrifum Hvalfjarðarganga á búsetuþróun og búsetuskilyrði á Vesturlandi sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi létu gera. Bróðurhluti hins fjárhagslega ávinnings íbúa Vesturlands vegna ganganna kemur í hlut íbúa á Akranessvæðinu, eða sem nemur 394 milljónum króna. Ávinningur Borgarfjarðarsvæðisins og Snæfellsness er um 50 milljónir á ári á báðum stöðum og Dalamenn græða sjö milljónir á göngunum. Vífill Karlsson, höfundur skýrslunnar, segir að bein áhrif Hvalfjarðaganganna á fasteignaverð séu einnig mikil og þannig hafi íbúðaverð á Akranessvæðinu hækkað um átján prósent vegna ganganna og verð íbúða annars staðar á Vesturlandi hækkað um þrettán prósent. Þá segir Vífill göngin hafa orsakað þriggja prósenta lækkun á vöruverði á Vesturlandi. Ein mikilvægustu áhrifin segir Vífill vera þau að íbúar Vesturlands séu mun bjartsýnni á framtíðarhorfur sínar eftir að göngin komu. Úrval atvinnu sé meira og atvinnuöryggi sömuleiðis. Hann segir það hafa komið mjög skýrt fram í rannsókninni að væntingar fólks á Vesturlandi séu allt aðrar og miklu betri eftir tilkomu ganganna og það verði að teljast einn stærsti þátturinn í áhrifum ganganna á líf fólks á Vesturlandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira