Gott uppgjör hjá Marel 11. ágúst 2004 00:01
Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljónum evra. Það sem af er ári er hagnaður Marels 3,8 milljónir evra sem er meira en á öllu árinu í fyrra. Gengi bréfa í Marel hækkuðu um 7,7 prósent í Kauphöll Íslands í gær. Það sem af er ári hefur verð á bréfum í félaginu ríflega tvöfaldast. Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segist vera ánægður með uppgjörið og að bætt rekstrarstaða sé komin til af betri framlegð. Veltan hafi aukist og kostnaður lækkað. Félagið hefur náð mörkuðum í kjötiðnaði og segir Hörður vöxt félagsins vera fyrst og fremst í kjötiðnaði. Hann leggur þó áherslu á að ekki sé lesið um of í rekstrarafkomuna á þessum fjórðungi. „Þetta er náttúrlega stutt tímabil. Sex mánuðir eru ekki langur tími í sögu fyrirtækis,“ segir hann. Í tilkynningu frá félaginu segir að verkefnastaða sé „þokkaleg“ um þessar mundir og að unnið sé að styrkingu á sölu og markaðskerfi á gömlum og nýjum mörkuðum félagsins. Hann segir Marel leggja áherslu á lausnir fyrrir minni framleiðendur sem hafa verið að ná góðum árangri og eins í stærri verkefnum fyrir matvælafyrirtæki. Marel hefur unnið að því undanfarin sex til átta ár að skapa sér markaðsstöðu í kjötiðnaði en upphaflega framleiddi Marel tæki til notkunar í fiskiðnaði. „Þessi markaður [kjötiðnaður] er mjög stór og hefur verið að vaxa þó nokkuð á síðustu árum,“ segir Hörður. Ytri aðstæður í rekstri Marels hafa ekki verið hagstæð. Hörður segir að þróun gengis Bandaríkjadals skipti miklu fyrir félagið en á síðustu misserum hefur Bandaríkjadalur verið ódýr. Hækki hann í verði hefur það jákvæð áhrif á afkomu Marels.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira