Átak gegn innbrotum 10. september 2004 00:01
Algengast er að innbrotsþjófar láti til skarar skríða í Árbæjar- og Höfðahverfi. Innbrot í bíla eru algengust og þjófarnir oftast ungir karlar. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur aflað í tengslum við átak um að fækka innbrotum. Lögreglustjórinn í Reykjavík stefnir að því að tuttugu prósenta fækkun verði á innbrotum í umdæminu á þessu ári. Það sem af er hefur sæmilega tekist að ná því markmiði en í lok ágúst hafði innbrotum fækkað um tólf prósent milli ára. Árangurinn er þakkaður bættu upplýsingaflæði innan lögreglunnar, eins og hverjir brjótist inn og hvar. Einnig er í smíðum rafrænn gagnagrunnur með götukorti og segir Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að það sé unnið í samvinnu Lögreglustjórans í Reykjavík og Ríkislögreglustjóra. Ætlunin er að stýra lögregluliðinu að nokkru leyti eftir gagnagrunninum sem líklega verður tilbúinn í lok ársins. Spurður hvort hann lofi auðgunarbrotalausu Íslandi árið 2010 segist Karl Steinar ekki gera það. Þá gleðst embættið yfir því að vopnuð rán hafa öll, nema eitt, verið upplýst og jafnvel eru dæmi um að þýfi og þjófar hafi fundist áður en tilkynnt var um innbrot. Algengast er að hlutum sem auðvelt er að koma í verð sé stolið eins og fartölvum, skjávörpum og geislaspilurum. Raunar hefur sérstök gjaldskrá verið í gangi í fíkniefnaheiminum þar sem gramm af amfetamíni hefur fengist fyrir spilara. Til að koma í veg fyrir slík viðskipti er brýnt að fólk sé vakandi og geri lögreglu viðvart ef því er til dæmis boðin ný fartölva til sölu á fimmtíu þúsund krónur. Algengast er að brotist sé inn í fyrirtæki og íbúðarhús í Árbæjar - og Höfðahverfi og í miðbænum. Skráð innbrot fyrstu átta mánuði ársins eru um 1100. Þar af hefur verið kært í um 200 tilvika. 162 voru að verki og þótt karlar séu að verki í miklum meirihluta, var sá sem oftast var kærður kona en sú hafði verið kærð átta sinnum á jafn mörgum mánuðum. Myndin er sviðsett.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira