Leitar álits Umboðsmanns Alþingis 10. september 2004 00:01
Helga Jónsdóttir borgarritari ætlar að leita álits umboðsmanns Alþingis á ráðningu í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Hún gefur lítið fyrir rökstuðning ráðherra um stöðuveitinguna. Helga Jónsdóttir krafðist þess af Árna Magnússyni félagsmálaráðherra að hann rökstyddi ráðningu í embætti ráðuneytisstjóra. Hún var meðal þeirra þriggja sem talin voru hæfust, auk Ragnhildar Arnljótsdóttur, sem fékk stöðuna og Hermanns Sæmundssonar, setts ráðuneytisstjóra. Greinargerðin er fjórar síður að lengd. Þar kemur fram að ráðherra hafi, eftir að hafa rætt við umsækjendur, ákveðið þau sjónarmið sem hann ætlaði að leggja til grundvallar valinu. Þau eru menntun, starfsreynsla sem nýtist ráðuneytisstjóra faglega og við stjórnun, forystuhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum, ásamt frammistöðu í starfsviðtali og mati á meðmælum. Síðan fjallar greinargerðin um hvers vegna Ragnhildur Arnljótsdóttir var ráðin, en ekki er fjallað um hvers vegna Helga fékk ekki starfið. Helga segir að henni finnist rökstuðningurinn heldur klénn og það komi sér á óvart að hann sé ekki studdur neinum gögnum. Hún segir það skylduráðherra að gæta þess að málefnaleg sjónarmið ráði, s.s. varðandi reynslu, menntun og fleira. Félagsmálaráðherra kemst að þeirri niðurstöðu í rökstuðningnum, eftir á að sögn Helgu, hvaða hæfniskröfur hefði átt að gera, en rökstuðningur fyrir því hvernig staðið er valinu er ekki að finna í greinargerðinni. Helga segist ekki geta gert annað en að leita til þess aðila sem samkvæmt íslenskum lögum fer yfir mál yfir þesu tagi, það er Umboðsmanns Alþingis. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, hefur sagt það með ólíkindum gengið hafi verið fram hjá Helgu, sem hefði hvað mestu reynsluna og þekkinguna á sviði stjórnsýslu. Hún sagði að það gæti hafa haft sitt að segja að Helga hafi verið náin samstarfsmanneskja hennar. Í greinargerð ráðherra er nefnd mikilvæg reynsla Ragnhildar Arnljótsdóttur af störfum á Evrópuvettvangi á fagsviði ráðuneytisins og sú þekking nýtist beint í mikilvægustu verkefnum þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira