Neyðaropnanir standa með lásasmiði 10. september 2004 00:01 "
Ég stend með Gústa en það næst ekki í hann," segir Grétar Eiríksson lásasmiður sem rekur Neyðaropnanir ehf. Gústi er maður á hans vegum sem hleypti blaðamanni DV inn í íbúð sem hann átti ekki án þess að biðja hann um sannanir fyrir því að hann byggi þar. Það var ekki fyrr en blaðamaðurinn hringdi í lásasmiðinn í annað sinn, að hann hringdi í lögreglu fyrir framan blaðamann. Þá hafði blaðamaðurinn kynnt sig fyrir honum og útskýrt tilraunina sem lásasmiðurinn hafði fallið fyrir. Lásasmiðurinn virðist síðan hafa greint yfirmanni sínum og lögreglunni frá því að hann hefði hringt í lögreglu fyrr en hann í raun gerði. Þegar blaðamaður hafði farið inn í íbúðina og lásasmiðurinn var á bak og burt, ætlaði blaðamaður að athuga hvort aðrir lásasmiðir féllu fyrir sams konar tilraun, hringdi hann í annað númer þar sem sami lásasmiður svaraði. Grétar vildi ekki ræða málið fyrr en rétt yfirvöld hefðu tekið ákvörðun um hvað þau muni gera. DV ákvað að kanna hvort mögulegt væri að fá hjálp lásasmiðs við að komast inn í íbúð annarra. Það var í ljósi frétta frá því í sumar þegar fólk kom fram í viðtölum við blaðið og skýrði frá því að innbrotsþjófar hefðu brotist inn í íbúð þeirra með hjálp lásasmiðs. Þá fullyrtu fyrirtækin sem opna hús fyrir fólki að slíkt gæti alls ekki gerst. Fjallað er um málið í helgarblaði DV í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Erlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Sjá meira