Fáar konur í áhrifastöðum 10. september 2004 00:01
Einungis tveir af tíu æðstu stjórnendum skóla á háskólastigi í landinu eru konur. Á meðal hóps kvenna í Háskóla Íslands er vilji til að úr þessu verði bætt og er hafin leit að frambærilegri konu til að bjóða sig fram til rektors Háskóla Íslands. Einungis þeir prófessorar eða dósentar sem ráðnir eru ótímabundið við háskólann geta boðið sig fram til rektors. Samkvæmt tölum frá háskólanum eru einungis 28 prósent prófessora eða dósenta konur. Það er því ljóst að heldur hallar á konur í baráttunni um rektorsstólinn. María Þorsteinsdóttir, dósent við læknadeild sem situr í stjórn Félags háskólakennara, segist telja brýnt að frambærileg kona bjóði sig fram. "Ég vil ekki nefna nein nöfn," segir María. "Ég held það þurfi að hvetja konur aðeins meira en karla til þess að gefa kost á sér. Það þarf eflaust að ganga á eftir sumum þeirra kvenna sem eru frambærilegar og brýna þær til þess að fara fram." Þegar hlutfall kynja í skólum landsins er skoðað í heild sinni kemur í ljós að í lægst launuðu skólastjórastöðunum eru konur í miklum meirihluta. Æðstu stjórnendur í leikskólum eru nánast undantekningarlaust konur. Um 99 prósent af 266 leikskólastjórum eru konur. Eftir því sem menntunarstigið eykst og laun hækka fækkar konum jafnt og þétt í æðstu stjórnunarstöðum skólanna. Í grunnskólum er hlutfallið nokkurn veginn í jafnvægi, þar eru um 44 prósent af skólastjórum konur. Í framhaldsskólum fækkar konum í æðstu stjórn hins vegar verulega og af 36 skólameisturum eru einungis 22 prósent konur. Í háskólum er hlutfallið síðan enn minna eins og komið hefur fram. Þórný Hlynsdóttir, þjónustustjóri á Landsbókasafninu sem situr í stjórn Félags háskólakennara, segir þetta óneitanlega athyglisverða þróun. "Ég veit í raun ekki hvort konur hafa sóst eftir þessum stöðum. Ég vona samt að það sé að verða breyting á og konur sæki í auknum mæli eftir ábyrgðarmiklum stöðum því það er til fjöldinn allur af frambærilegum konum sem getur vel sinnt þessum störfum." Aðspurð segist hún ekki telja að það eigi að ráða konu í stöðu rektors bara af því að það sé kominn tími til að kona gegni starfinu. "Það er til fullt af frambærilegum konum innan háskólans. Mér finnst samt að skoðanir og stefna viðkomandi eigi að ráða úrslitum. Við þurfum manneskju sem berst fyrir því að háskólinn haldi virðingu sinni sem rannsóknarháskóli. Hvors kyns sú manneskja er finnst mér ekki skipta máli. Mín persónulega skoðun er að mér hefur alltaf þótt óþægilegt þegar konur eru valdar sökum kynferðis eða hafnað sökum kynferðis. Kynferðið á ekki að ráða för, það er ekki faglegt. Það eru breyttir tímar framundan hjá Háskóla Íslands og við þurfum einfaldlega manneskju sem getur staðið í samkeppni um fjármagn frá ríkinu við einkarekna háskóla. Vegna þessa held ég að staðan verði pólitískari á næstu árum en hún hefur verið hingað til."
Fréttir Innlent Mest lesið Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Fleiri fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Sjá meira