Innlent

Þetta er hátíðisdagur

Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi og Hrunaréttir voru í gær og í dag er réttað í Reykjarétt á Skeiðum og í Tungnarétt í Biskupstungum. "Þetta er hátíðisdagur," segir Loftur Eiríksson bóndi í Steinsholti í Gnúpverjahreppi. Hann verður 83 ára þann 16. september og hefur ekki misst úr réttum síðan hann var þriggja eða fjögurra ára. "Ég tvímennti á hesti með systur minni þegar ég var lítill og man að einu sinni duttum við bæði af baki á leiðinni. Ég fór í mínar fyrstu göngur 1939, eldri bræður mínir hleyptu mér ekki að fyrr. Þá hafði rignt mikið og vaxið í vötnum svo fé fór á sund og við stóðum uppfyrir mitti úti í Fossá að draga féð upp á bakkann á réttum stað. Ég fór fyrst yfir Fjórðungssand 1945, en fór ekki oft í göngur. Ég fór hins vegar í mörg sumur sem fylgdarmaður með góðum hópi fólks í hestaferðir um sunnanvert hálendið og víðar." Loftur er hættur búskap en á eina á tvílembda og vænti þess að heimta fé sitt af fjalli í réttunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×