Ráðherrarnir hans Davíðs 10. september 2004 00:01
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið lengur í forsæti ríkisstjórnar Íslands en nokkur annar. Hann varð forsætisráðherra 30. apríl 1991 er hann myndaði ríkisstjórn með Alþýðuflokki en síðustu þrjú kjörtímabil vann hann með framsóknarmönnum. Alls sátu 29 ráðherrar í ríkisstjórnum Davíðs. Tólf þessara manna eru horfnir til annarra starfa en sautján sitja enn á þingi. Tíu af þessum tólf gegna eða gegndu störfum sem ráðherrar eða aðrir stjórnmálamenn skipa eða ráða í. Konur í ráðuneytum Davíðs eru í dágóðum minnihluta, sjö á móti tuttugu og tveimur körlum. Tvær þeirra hafa komið úr hans eigin flokki. 1991-1995 Í fyrstu ríkisstjórn Davíðs sátu, auk hans, Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal, Ólafur G. Einarsson og Þorsteinn Pálsson fyrir Sjálfstæðisflokk. Fyrir Alþýðuflokk sátu í fyrstu Eiður Guðnason, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Jón Sigurðsson og Sighvatur Björgvinsson. Á miðju kjörtímabili létu Eiður og Jón Sigurðsson af þingmennsku. Eiður varð sendiherra og Jón Seðlabankastjóri. Í þeirra stað tóku Guðmundur Árni Stefánsson og Össur Skarphéðinsson sæti í stjórninni. Síðar sagði Guðmundur Árni af sér embætti og varð Rannveig Guðmundsdóttir ráðherra í hans stað. Áður hafði Jóhanna hætt í ríkisstjórn. 1995-1999 Í annarri stjórn Davíðs var ráðherraskipan sjálfstæðismanna með svipuðum hætti og verið hafði kjörtímabilið á undan, utan hvað Björn Bjarnason kom inn í stjórnina í stað Ólafs G. Einarssonar sem varð forseti Alþingis. Þegar ár lifði af tímabilinu var Geir Haarde skipaður fjármálaráðherra en Friðrik Sophusson varð almennur þingmaður þar til hann var ráðinn forstjóri Landsvirkjunar skömmu síðar. Fyrir Framsóknarflokkinn settust í stjórnina þau Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjarnason, Ingibjörg Pálmadóttir og Páll Pétursson. 1999-2003 Nokkrar breytingar urðu á ráðherraliði Sjálfstæðisflokks við upphaf þriðja kjörtímabils Davíðs. Þorsteinn Pálsson varð sendiherra og Halldór Blöndal forseti þingsins en um leið var fjölgað um einn ráðherrastól hjá hvorum flokki, úr fimm í sex. Nýir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins urðu Árni Mathiesen, Sólveig Pétursdóttir og Sturla Böðvarsson. Síðar á kjörtímabilinu einbeitti Björn Bjarnason sér að framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur og varð Tómas Ingi Olrich ráðherra í hans stað. Sú breyting varð Framsóknarmegin að Guðmundur Bjarnason varð forstjóri Íbúðalánasjóðs en Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir komu ný inn í stjórnina. Þegar stutt var liðið á kjörtímabilið varð Finnur Ingólfsson Seðlabankastjóri og var Valgerður Sverrisdóttir valin í stjórnina í hans stað. Enn síðar hætti Ingibjörg Pálmadóttir í stjórnmálum og Jón Kristjánsson varð ráðherra. 2003-2004 Á kjörtímabilinu sem nú stendur urðu enn breytingar. Björn kom inn í stjórnina á ný í stað Sólveigar, sem í fyrstu er óbreyttur þingmaður en verður síðar þingforseti. Um áramótin steig svo Tómas Ingi Olrich úr ráðherrastóli til að verða sendiherra og tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við af honum. Árni Magnússon varð ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn en Páll Pétursson hætti í stjórnmálum. Kunn er svo Sivjar saga Friðleifsdóttur. Hætt - farin Séu afdrif samráðherra Davíðs Oddssonar í forsætisráðherratíð hans dregin saman kemur eftirfarandi í ljós. Fjórir eru sendiherrar, þeir Eiður Guðnason, Jón Baldvin Hannibalsson, Tómas Ingi Olrich og Þorsteinn Pálsson. Jón Sigurðsson og Finnur Ingólfsson voru skipaðir Seðlabankastjórar en hurfu frá embættum sínum síðar. Þrír eru forstjórar hjá opinberum fyrirtækjum eða stofnunum; Friðrik Sophusson í Landsvirkjun, Guðmundur Bjarnason í Íbúðalánasjóði og Sighvatur Björgvinsson í Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Ólafur G. Einarsson er formaður bankaráðs Seðlabanka. Ingibjörg Pálmadóttir og Páll Pétursson starfa ekki á vegum hins opinbera. Enn í pólitík Sautján sitja enn á þingi, þar af eru sjö utan ríkisstjórnar og af þeim hópi eru fjórir stjórnarandstöðuþingmenn. Það eru Guðmundur Árni Stefánsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Össur Skarphéðinsson. Þrír stjórnarliðar sem áður sátu í ríkisstjórn eru nú utan hennar; þau Halldór Blöndal, Siv Friðleifsdóttir og Sólveig Pétursdóttir. Tíu sitja enn í stjórn og er það ríkisstjórnin eins og hún leggur sig nú utan Sigríðar Önnu Þórðardóttur sem ekki varð ráðherra í forsætisráðherratíð Davíðs. Hans var þó ákvörðunin um ráðherradóm Sigríðar Önnu. Lengst og skemmst með Davíð Halldór Ásgrímsson er sá ráðherra sem lengst hefur setið í ríkisstjórnum Davíðs Oddssonar. Hann varð utanríkisráðherra í stjórninni sem tók við völdum í apríl 1995 og hefur því setið undir hans forsæti í níu ár og fimm mánuði. Björn Bjarnason er næstur á listanum en samtals hefur hann verið í ríkisstjórn í átta ár og þrjá mánuði. Þorsteinn Pálsson og Páll Pétursson koma næstir og þar á eftir Friðrik Sophusson. Rannveig Guðmundsdóttir er hins vegar sá ráðherra sem sat skemmst í ríkisstjórnum Davíðs, einungis rúma fimm mánuði. Þorgerður Katrín kemur næst með tæplega níu mánaða setu, þá Árni Magnússon, Guðmundur Árni Stefánsson og Tómas Ingi Olrich.
Stj.mál Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Sjá meira