Óvíst hver rannsakar málið 10. september 2004 00:01
Ríkissaksóknari ákveður innan stundar hvaða lögregluembætti verður falið að rannsaka tildrög þess að þrjátíu og þriggja ára karlmaður lést í Keflavík síðdegis í gær eftir snörp átök við lögreglumenn þar. Það var klukkan rúmlega fimm síðdegis að lögreglunni var tilkynnt um mann sem væri illa á sig kominn úti á götu í Keflavík. Hann virtist vera í annarlegu ástandi og var fluttur á lögreglustöðina . Hringt var heim til hans þar sem sonur hans kom í símann og eftir það samtal þótti ástæða til að lögregla kannaði nánar ástand á heimilinu. Þegar tveir lögreglumenn komu þangað kom sonurinn út á lóð til móts við lögregluna, var æstur, árásargjarn, óljós í tali og hafði í hótunum að sögn lögreglu. Upphófust mikil átök og voru tveir lögreglumenn til viðbótar kallaðir á vettvang, að sögn vitna, en þegar lögregla náði loks tökum á honum og náði að handjárna hann, varð maðurinn skyndilega mjög veikur og missti meðvitund. Lögreglan kallaði þegar á sjúkrabíl og hóf lífgunartilraunir en þær báru ekki árangur. Þegar þarna var komið sögu voru læknir og prestur kallaðir á lögreglustöðina til að aðstoða föðurinn, sem er liðlega sextugur. Ekki fæst uppgefið hvort áverkar sáust á honum þegar hann var tekinn úr umferð né hvort áverkar sáust á syninum áður en til átaka við lögregluna kom. Það er því með öllu óljóst hvers vegna lögregla taldi ástæðu til að fara heim til sonarins eftir símtal við hann, jafnvel þótt hann hafi virst í annarlegu ástandi. Að sögn nágranna sonarins átti hann við geðræn vandamál að stríða en þeir töldu aldrei neina ógn stafa af honum og óttuðust ekki heldur um börn sín í návist hans, þótt hann væri stór og þrekvaxinn. Lögreglumenn frá tæknideild Lögreglunnar í Reykjavík og Ríkislögreglustjóra voru kallaðir á vettvang og voru þar við störf fram á nótt að sögn nágranna. Keflavíkurlögreglan sendi Ríkissaksóknara öll gögn í morgun en hann tekur ákvörðun um hvaða lögregluembætti verður falin rannsóknin þar sem Keflavíkurlögreglan getur það ekki vegna málsatvika. Ákvörðun um það liggur fyrir innan stundar. Eftir því sem fréttstofan kemst næst er faðirinn enn undir eftirliti lækna
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira