Gatnakerfi borgarinnar er sprungið 10. september 2004 00:01 "
Það leikur engin vafi á að umferðarþunginn hefur sjaldan verið meiri en nú er," segir Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík. Umferðarþunginn á stofnbrautum höfuðborgarinnar eykst ár frá ári og eru flestir vegfarendur sammála um að gatnakerfið í Reykjavík sé endanlega sprungið. Karl Steinar segir áberandi hversu mikið hefur verið um árekstra í höfuðborginni í sumar og haust og segir tvímælalaust að ein meginástæða þess sé sú þunga umferð á morgnana og seinnipart dags þegar ökumenn fara úr og í vinnu. "September hefur verið einn versti mánuðurinn hvað varðar umferðina um árabil og bið hefur orðið á stórum framkvæmdum við stofnbrautir í Reykjavík og brýn þörf orðin á að eitthvað sé gert við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar." Karl Steinar sagði lögreglumenn taka mið af erfiðum gatnamótum þegar mikið liggur við og því hefði ekki enn komið til alvarlegra vandræða vegna þess að lögregla gæti ekki athafnað sig sökum umferðartafa. Birgir Finnsson, hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir að komi til útkalla á annatímum í umferð sé viðbragðstími sjúkra- og slökkviliðs að sjálfsögðu skertur. "Það sem hefur bjargað okkur er að við getum kallað út sjúkra- eða slökkvilið frá þremur stöðum og komi eitthvað fyrir þegar umferð er mikil er tekið tillit til þess þegar ræst er út." Ýmsir hafa haft á orði að þessi síaukni umferðarþungi hljóti að þýða aukna megnun en samkvæmt upplýsingum frá Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur er það ekki raunin. "Það er fulldjúpt í árina tekið að segja að mengun hafi minnkað en hún hefur allavega ekki aukist," segir Lúðvík E. Gústafsson, deildarstjóri hjá stofnuninni. Þar er loftmengun mæld reglulega á nokkrum stöðum í borginni og sýna mælingar að loftmengun hefur ekki aukist. "Mælar sýna að almennt hefur mengun minnkað hin síðari ár og er það að miklu leyti að þakka sparneytnari bílum og auknum loftmengunarbúnaði í þeim sem ekki var áður til staðar. Einnig er svo mikil hreyfing á loftinu þegar heitt er í veðri að agnir safnast ekki saman að ráði. Það verður hins vegar vandamál í vetrarstillum þegar loft hreyfist lítið sem ekkert."
Fréttir Innlent Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira