Sport

Fá 50 milljónir á mánuði

Frank Lampard, Patrick Vieira og Sol Campbell eru launahæstu leikmennirnir í ensku knattspyrnunni í dag og þiggja allir 11,6 milljónir íslenskra króna á viku eða rétt um 50 milljónir á mánuði. Þremenningarnir hafa nokkra yfirburði á toppi listans því næstur inn er Roy Keane, fyrirliði Manchester United, með "aðeins" tæpar 10 milljónir króna. Athygli vekur að efstu sjö sæti listans skipa aðeins leikmenn frá Arsenal, Chelsea og Manchester United, og undirstrikar sú staðreynd hversu mikla fjárhagslega yfirburði þessi þrjú lið hafa yfir önnur í Englandi. Steven Gerrad, fyrirliði Liverpool, sem ákvað í sumar að halda kyrru fyrir á Anfield og hafnaði gylliboðum frá bæði Chelsea og Real Madrid sem hefðu án efa gert hann að einum launahæsta knattspyrnumanni heims, þiggur sínar vikulegu 6,6 milljónir króna og virðist una vel við sitt. Hinn magnaði Thierry Henry, sem flestir eru sammála um að sé mikilvægasti leikmaður Arsenal, verður að sætta sig við lægri laun en Vieira og Campbell og fær um 9,4 milljónir á viku. Og þótt ótrúlegt megi virðast nær ólátabelgurinn Kieron Dyer 8. sæti listans með heilar 7,3 milljónir á viku og skiptir þá litlu að Dyer hefur síður en svo átt fast sæti í liði Newcastle það sem af er leiktíðinni. Arjen Robben, sem Chelsea keypti á tæpa 1,4 milljarða í sumar, fær tæpar 6 milljónir á viku og er í sama launaflokki hjá Chelsea og Eiður Smári Guðjohnsen. Af liðunum í London er það Tottenham sem borgar sínum leikmönnum lægstu launin. Jermain Defoe, sem ásamt Wayne Rooney er talinn efnilegasti framherji Englands, fær ekki nema 2,1 milljón á viku, það sama og markvörðurinn Paul Robinson, og eru þeir meðal þeirra launahæstu á White Hart Lane. Þess má geta að Joe Cole fær helmingi meira fyrir að sitja upp í stúku helgi eftir helgi hjá Chelsea. Middlesbrough hefur verið duglegt að lokka til sín frambærilega leikmenn sem komnir eru á aldur og er þeim borgað eftir því; Jimmy Floyd Hasselbaink, Mark Viduka og Gareth Southgate fá allir 4,7 milljónir á viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×