Hannes sökkti Svíum 12. október 2004 00:01
Þetta er önnur þrenna Hannesar í fyrstu fjórum leikjum Íslands í undankeppni HM. Hann skoraði líka þrennu gegn Búlgörum á dögunum. Hann var í leikbanni á Möltu síðastliðinn föstudag og sást þá berlega hversu mikilvægur hann er þessu U-21 árs liði. "Hannesar var sárt saknað á Möltu og hann er svona endapunkturinn í liðinu. Maðurinn sem klárar dæmið fyrir okkur," sagði kátur þjálfari U-21 árs liðins, Eyjólfur Gjafar Sverrisson. Hann segir að þótt Hannes hafi verið heitur megi ekki gleyma að hrósa hinum strákunum. "Hinir strákarnir búa til fyrir Hannes og fá að sjálfsögðu hrós fyrir það. Það var frábær liðsheild á vellinum í dag og ég er virkilega stoltur af strákunum." Það er óhætt að taka undir þessi orð Eyjólfs því það var frábært að fylgjast með strákunum hans í gær. Þeir börðust hver fyrir annan allan leikinn. Veitti ekki af þar sem þeir hafa tapað síðustu tveim leikjum á lokamínútu leiksins. Það var fyrst og fremst þessi stórkostlega liðsheild sem skóp sigurinn. Allir leikmenn liðsins áttu góðan leik og hvergi var veikan hlekk að finna. Þeir sem stóðu þó upp úr í góðu liði Íslands fyrir utan Hannes voru miðjumennirnir Davíð Þór Viðarsson og Ólafur Ingi Skúlason sem áttu báðir stórleik. Emil Hallfreðsson sýndi lipra takta og Sverrir Garðarsson og Jónas Guðni Sævarsson stigu vart feilspor í vörninni. Frammistaða Hennings Eyþórs Jónassonar vakti einnig athygli en allt annað var að sjá til hans núna en á Möltu þar sem taugaspennan virtist bera hann ofurliði. Það var jafnræði með liðunum framan af fyrri hálfleik enda bauð veðrið fyrstu 20 mínútur leiksins, úrhellisrigning og sterkur vindur, ekki upp á mikla knattspyrnu. Eftir að óveðrinu slotaði fóru liðin að sýna fín tilþrif. Sóknaraðgerðir íslenska liðsins voru mun markvissari og Svíarnir voru í verulegum vandræðum með að brjóta niður sterka vörn Íslands. Hannes kom Íslandi yfir á 24. mínútu með öruggri vítaspyrnu. Spyrnuna fiskaði hann sjálfur en varnarmaður Svía braut klaufalega á honum - ýtti á bak Hannesar án nokkurrar ástæðu. Svíar byrjuðu aftur á móti síðari hálfleik með miklum látum og uppskáru sanngjarnt jöfnunarmark á 54. mínútu er Alexander Farnerud skaut glæsilegu skoti fyrir utan teig sem Bjarni Þórður markvörður átti aldrei möguleika á að verja. Íslensku strákarnir létu markið ekki slá sig út af laginu og Hannes kom Íslandi yfir aftur fjórum mínútum síðar er hann sýndi af sér mikið harðfylgi í teignum, kastaði sér á boltann og kom honum í netið. Hann fullkomnaði þrennuna þrem mínútum síðar er sænski markvörðurinn skaut boltanum í Hannes og þaðan fór hann í netið. Vafalítið ekki fallegasta markið sem Hannes hefur skorað á ferlinum en það telur jafn mikið og öll hin. Það sem eftir lifði leiks hafði íslenska liðið öll völd á vellinum og var líklegra til að bæta við. Í raun voru Íslendingar klaufar að skora ekki fleiri mörk því þeir fengu svo sannarlega fín færi til þess. Niðurstaðan frábær sigur sem var fullkomlega sanngjarn. "Ég er ánægður með uppskeruna í fyrstu fjórum leikjunum. Þetta hafa verið mjög skemmtilegir leikir og það hefur verið fínn stígandi í okkar leik. Þessir strákar eru tilbúnir að taka framförum, ætla sér stóra hluti í framtíðinni og það leynir sér ekki," sagði Eyjólfur að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Enski boltinn Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Körfubolti Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitastund fyrir ÍA Sport Ómar Ingi fór áfram hamförum Handbolti Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Fótbolti Yankees heiðruðu Charlie Kirk Sport Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Körfubolti Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Körfubolti Fleiri fréttir Yankees heiðruðu Charlie Kirk Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Dagskráin í dag: Úrslitastund fyrir ÍA Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Ómar Ingi fór áfram hamförum Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Álftanes mætir stórliði Benfica „Gagnrýnið mig en ekki liðið“ Finnar afgreiddu Georgíu með stæl „Þurftum að spila á móti dómurum, lögreglu og boltastrákum líka“ Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Stærsta lið Úkraínu samdi við aðdáanda Pútin Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Tiger byrjaður að æfa á nýjan leik Veðreiðafólk fer í verkfall og mótmælir við breska þingið Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda „Vissi ekki að ég væri sá fyrsti“ Köstuðu kúk og hentu handsprengjum: „Allt sem suður-amerískur fótbolti á að standa fyrir“ Hitabylgja hjá íslensku keppendunum í Tókýó Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Sjá meira