Vill verslun á sama stað og Nóatún 21. október 2004 00:01
Matvöruverslunarfyrirtæki er nú að kanna hvort það geti fengið heimild til reksturs verslunar á sama svæði í Grafarholti og Nóatún rekur nú verslun. Júlíus Vífill Ingvarsson, lögfræðingur hjá lögmannstöfunni Lögvernd, segist ekki geta sagt hvaða fyrirtæki sé um að ræða. Fréttablaðið greindi frá því í fyrradag að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar, teldi að vegna mistaka embættismanna hefðu Gullhamrar ehf. fengið verslunarleyfi við Þjóðhildarstíg við rætur holtsins. Gullhamrar leigja Nóatúni húsnæðið. Í Fréttablaðinu í gær sagði Salvör Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs, að mistökin væru fólgin í því að ekki hefði verið nægilega skýrt kveðið á um það í aðalskipulagi að óheimilt væri að reka verslun annars staðar í Grafarholti en við Kirkjustíg, verslunarkjarnanum efst á holtinu. Hún sagði að nú væri búið að breyta aðalskipulaginu og fyrirbyggja að hægt væri að opna matvöruverslun annars staðar en við Kirkjustíg. "Það er alveg ljóst að stjórnmálamenn geta ekki varpað ábyrgð gerða sinna yfir á embættismenn," segir Júlíus Vífill. "Það hefur auk þess enga lagalega þýðingu þótt einhverjir borgarfulltrúar lýsi því yfir eftir á að gerð skipulags hafi verið gallað og að um mistök hafi verið að ræða. Hvað verður þá um réttaröryggi á þessu sviði? Gerð aðalskipulags fær vandaða meðferð í borgarkerfinu til að fyrirbyggja að það geti komið upp álitamál síðar meir varðandi gildi þess." Júlíus Vífill segir að tiltekið matvöruverslunarfyrirtæki hafi falið honum að skoða málið. "Ég er að skoða það með tillit til þess hvort heimild til reksturs matvöruverslunar Nóatúns við Þjóðhildarstíg hafi skapað öðrum rétt til að hefja samskonar rekstur í nágrenninu. Þar kemur til dæmis til greina jafnræðisreglan en það getur verið á brattann að sækja í þessum málum." Salvör sagðist í Fréttablaðinu í gær ekki telja að borgin væri að brjóta jafnræðisregluna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira