Innlent

Búið að ná sambandi við mennina

Lögreglan er búin að ná sambandi við mennina þrjá, sem réðust á fréttastjóra DV á ritstjórn blaðsins í gær og tóku hann meðal annars kverkataki þannig að á honum sá og höfðu í hótunum við starfsfólk. Lögregla boðaði alla mennina til skýrslutöku í dag, en enginn þeirra var handtekinn í gær, sem bendir til þess að lögregla hafi aðeins náð símasambandi við þá. Mennirnir, sem munu tengjast vélhjólaklúbbnum Fáfni, reyndu svo að aka á starfsmann DV, sem fór út á eftir þeim til að ná númeri á bíl þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×