Ragnar í gæsluvarðhald 3. ágúst 2004 00:01
Taílensk yfirvöld framseldu um helgina Ragnar Sigurjónsson, fyrrverandi skreiðarútflytjanda, sem hvarf sporlaust í Lundúnum fyrir fimm árum. Í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness Ragnar í gæsluvarðhald hér á landi til 23. ágúst. Ragnar, sem nú er 62 ára gamall var á sínum tíma sölustjóri í Sjvávarafurðadeild Sambandsins og sá þar meðal annars um útflutning á þurrkuðum þorskhausum til Nígeríu. Árið 1998 var gefin út ákæra á hendur Ragnari fyrir fjársvik í garð Nígeríumanns, sem greiddi honum á fimmtu milljón króna fyrir skreiðarfarm sem aldrei var afhentur. Ragnar mætti tvisvar fyrir Héraðsdóm Reykjaness, en nokkru áður en hann átti að mæta í þriðja skiptið, yfirgaf hann landið og fór til London, þann annan apríl árið 1999. Heimferð hans var áætluð tveim dögum síðar, en Ragnar varð eftir í London. Þegar ekkert hafði heyrst frá honum í nokkra daga fór fjölskylda hans fram á að leitað yrði að honum og var því haft samband við lögregluna í Lundúnum og lýst eftir honum af Interpol. Rúmum þremur mánuðum síðar hafði Ragnar svo samband við fjölskyldu sína og kvaðst kominn til Taílands. Í september árið 2000 samþykktu taílensk stjórnvöld svo beiðni um framsal Ragnars til Íslands. Það var síðan ekki fyrr en eftir að lögregla í Taílandi handsamaði Ragnar fyrir smáþjófnað þar í landi í maí á þessu ári að skriður komst í málið á nýjan leik. Úr þeirri vist var honum vísað úr landi með óformlegum hætti og kom hann hingað til lands á sunnudag í fylgd íslenskra lögreguþjóna. Hann var svo úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. ágúst í Héraðsdómi Reykjaness í gær og hefur hann þegar áfrýjað þeim úrskurði til Hæstaréttar.
Fréttir Innlent Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira