Innlent

Sex guðfræðingar sóttu um

Sex guðfræðingar sóttu embætti sóknarprests í Ólafsfjarðarprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi, en umsóknarfrestur rann út 28. júlí síðastliðinn. Umsækjendur eru guðfræðingarnir: Aðalsteinn Þorvaldsson, Arndís Ósk Hauksdóttir, Sigríður Munda Jónsdóttir, Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sólveig Jónsdóttir og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir. Embættið er veitt frá 1. nóvember 2004 en kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára samkvæmt niðurstöðu fimm manna valnefndar Hólaumdæmis, sé hún einróma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×