Ákærður fyrir þrettán brot 18. ágúst 2004 00:01
Tuttugu og fjögurra ára maður sem meðal annars er ákærður fyrir rán í verslun á Laugarvatni sagðist við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær ekki hafa beitt ofbeldi eða hótunum þegar hann framdi ránið. Maðurinn er einnig ákærður fyrir fjölda brota svo sem bílþjófnaði, fjársvik, innbrot, skjalafals, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Ríkissaksóknari ákærir manninn fyrir að hafa ógnað afgreiðslustúlku sem var ófrísk með rörtöng í versluninni H-seli á Laugarvatni sautjánda maí síðastliðinn. Hann er sagður hafa krafið stúlkuna um peninga, farið inn fyrir afgreiðsluborðið og hrifsað að minnsta kosti 33 þúsund krónur úr peningakassanum. Með rörtönginni mölvaði maðurinn gler í afgreiðsluborðinu. Eigandi verslunarinnar og faðir afgreiðslustúlkunnar sá manninn í biluðum símaklefa og elti hann á bíl til Þingvalla þar sem honum tókst að yfirbuga ræningjann með aðstoð vegfaranda. Maðurinn játaði að hafa sama dag stolið bíl í Reykjavík sem hann ók undir áhrifum lyfja til Þorlákshafnar, Þingvalla og Laugarvatns. Maðurinn er einnig ákærður af Lögreglustjóranum í Reykjavík fyrir ellefu brot sem hann játaði í héraðsdómi í gær. Þar af eru fjögur þjófnaðarbrot. Hann braust inn í Tónlistarskólann í Reykjavík og tvær geymslur í Árbæ, þaðan stal hann verðmætum fyrir um 70 þúsund krónur. Þá fór hann í heimildarleysi inn í íbúðarhús í Breiðholti og stal ýmsum raftækjum, auk þess stal hann peningaveski í félagsmiðstöð. Maðurinn játaði einnig fjársvik þar sem hann hafði tekið kreditkort ófrjálsri hendi og notað það til að greiða fyrir leigubíla og aðra þjónustu. Hann játaði líka að hafa framvísað í banka falsaðri ávísun í janúar. Í apríl og maí stal hann tveimur bílum sem hann ók innan Reykjavíkur. Skömmu áður hafði hann verið tekinn með tæpt gramm af amfetamíni í fórum sínum. Þá braut hann í tvígang gegn umferðarlögum þegar hann ók undir áhrifum lyfja.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira