Magnús hlýtur lýðheilsuverðlaunin 18. ágúst 2004 00:01
Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár en þau eru veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem hafa lagt fram mikilvægan skerf til að bæta lýðheilsu á Norðurlöndum. Í tilkynningu segir að Magnús hafi í áratug unnið að því að hvetja börn til heilbrigðari lífshátta í verkinu um Latabæ. Á stuttum tíma varð hann fyrirmynd barna um hreyfingu og heilbrigði og ákvað að nota skemmtun sem aðferð til að fá börn til að hreyfa sig, borða hollari mat og keppa að heilbrigðum lífsháttum. Í mati dómnefndar segir að offita meðal barna sé vaxandi lýðheilsuvandamál á Norðurlöndum. Í verkinu um Latabæ eru börn hvött til heilbrigðari lífshátta með samblandi af leik og fræðslu og þar er áhersla lögð á hreyfingargleði og góðar matarvenjur. Stjórnandi og hugmyndasmiður verksins um Latabæ, Magnús Scheving, vinnur á óvenjulegan og nýstárlegan hátt að bættri heilsu barna. NHV, Norræni háskólinn fyrir lýðheilsufræði, hefur samkvæmt fyrirmælum Norrænu ráðherranefndarinnar veitt Norrænu lýðheilsuverðlaunin frá árinu 1989. Frá og með árinu 2001 hafa Norræna ráðherranefndin og NHV tekið höndum saman um að fjármagna verðlaunaupphæðina sem er 500 þúsund íslenskar krónur. Á myndinni er Magnús með einum af íbúum Latabæs, Glanna glæp.
Fréttir Innlent Mest lesið Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira