Brúnni yfir Jöklu lokað aftur 4. ágúst 2004 00:01
Búið er að loka brúnni yfir Jökulsá á Dal aftur vegna vatnavaxta og er ekki útilokað að vatnsyfirborðið nái hærra en í flóðinu í gær. Ákveðið hefur verið að hækka varnarstíflu um fimm metra í varúðarskyni. Önnur hjárennslisgöngin hafa ekki undan, væntanlega vegna stíflu. Hjárennlisgöngunum er ætlað að veita ánni fram hjá vinnusvæðinu meðan á framkvæmdum stendur. Neðri göngin skila því vatnsmagni sem ætlast er til en ekki þau efri og ekki er hægt að komast að því hvers vegna það er fyrr en vatnið sjatnar. Tvær skýringar eru þó nefndar; önnur að grjót hafi hrunið í göngunum og myndað stíflu eða að lofttregða hafi myndast inni í göngunum sem hindri rennslið. Engu að síður eru göngin mun víðari en upphaflega var ætlað. Þvermál þeirra átti að vera sex metrar en ítalski verktakinn Impregilo taldi það ekki nægilega öruggt og fékk því framgengt að það var aukið í níu metra. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, eiga göngin að anna mun meira vatnsmagni en var í gær, miðað við að allt sé með eðlilegum hætti. Veginum og brúnni yfir Jökulsá var lokað í gær enda náði vatnið upp undir brú. Samkvæmt hönnuði brúarinnar á hún þó að þola slíkan straumþunga, þrátt fyrir að hún fari í kaf. Leó Sigurðsson, yfirmaður öryggismála Impregilo, segir ástandið ekki hafa komið á óvart því von er á vatnavöxtum yfir hásumartímann og bráðnunar í jökli. Samt megi segja að vatnsrennslið og -hæðin hafi verið heldur meiri en reiknað var með í hönnunarforsendum verkefnisins. Í dag héldu sérfræðingar Landsvirkjunar fund með hönnuðum, verktökum og framkvæmdaeftirliti við Kárahnjúka. Þar var ákveðið að hækka varnarstíflu efst á framkvæmdasvæðinu um fimm metra í varúðarskyni. Og menn eru stöðugt á verði. Leó segir að öryggisteymi Impregilo sé stöðugt á ferðinni og fari eftir ákveðnum verklagsferlum. Á hverjum degi fylli þessir öryggisfulltrúar út skýrslur til þess að fylgjast með þeim breytingum sem verða daglega. Og það veitir greinilega ekki af því síðdegis var ljóst að vatnsmagnið í Jökulsá eykst nú hratt og var því lokað fyrir umferð yfir brúna. Ekki er talið útilokað að vatnið stígi enn hærra en í gær en það gæti þýtt að brúin fari undir vatn.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira