Það var allt vitlaust 28. nóvember 2004 00:01
Það var líf og fjör í leik Þórs og Fram í Norðurriðli Íslandsmótsins á laugardag. Upp úr sauð í lokin þegar Framarinn Ingólfur Axelsson braut illa á Þórsaranum Gorani Gusic. Ingólfur uppskar rautt spjald fyrir vikið og á leið sinni til búningsherbergja stjakaði Ingólfur við leikmönnum 3. flokks Þórs sem ögruðu honum. Þá var fjandinn laus eða eins og heimildamaður Fréttablaðsins orðaði það: "Það var allt vitlaust." Leikmenn hópuðust á staðinn og nokkrir áhorfendur stukku einnig úr stúkunni til þess að taka þátt í fjörinu. Tók þó nokkurn tíma að róa mannskapinn og klára leikinn en fimm sekúndur voru eftir af leiknum er Ingólfur braut á Gusic sem reyndar skoraði þrátt fyrir brotið og tryggði Þór þar með jafntefli í leiknum, 28-28. Sögur fóru af stað þess efnis að Ingólfur hefði gengið ansi hraustlega fram gegn 3. flokks strákunum og að hann hefði hreinlega lamið mann og annan. Það segir Ingólfur ekki vera alveg rétt. "Þetta var nú bara þannig að ég átti færi á að jarða Goran í hraðaupphlaupinu. Ég ýtti aðeins í mjöðmina á honum með þeim afleiðingum að hann missir aðeins jafnvægið en hann skoraði samt. Ég fékk rautt fyrir brotið sem ég sætti mig alveg við. Goran meiddist ekkert en hann mætir til mín alveg brjálaður er ég fæ rauða spjaldið og byrjar að svívirða mig. Ég sagði honum bara að þetta væri handbolti og ýtti honum frá mér," sagði Ingólfur og þegar þarna er komið við sögu er enn allt rólegt í húsinu en það breyttist er hann reyndi að ganga til búningsherbergja. "Strákarnir í 3. flokki Þórs byrja að ögra mér, þegar ég geng í átt að klefanum, og stíga fyrir mig. Þá ýtti ég þeim bara í burtu en um leið sé ég að allt verður vitlaust. Ég var sjálfur alveg rólegur. Ég ýti bara í hópinn en lamdi ekki neinn. Það er af og frá. Mér finnst líka alveg fáranlegt að áhorfendur í húsinu geti verið að labba í veg fyrir mig og ausa yfir mig svívirðingum þegar ég er á leið út af vellinum," sagði Ingólfur sem er fyrrum KA-maður en það hefur oft verið grunnt á því góða á milli Akureyrarliðanna. Annar fyrrverandi KA-maður sem einnig leikur með Fram, Arnar Þór Sæþórsson, fékk einnig að líta rauða spjaldið sem og Þórsarinn Bjarni Gunnar Bjarnason. "Þeir voru eitthvað rífast og voru ansi heitir. Áhorfendur mættu á svæðið og héldu í Arnar og Bjarna og þetta var ansi fjörugt," sagði Ingólfur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem allt verður vitlaust í heimaleik Þórs í vetur og Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að Þórsarar hafi fengið aðvörun fyrr í vetur vegna skipulagningar á heimaleikjum sínum. "Í umgjörð leikja á að vera gæsla og það á að passa upp á að svona lagað gerist. Það eiga að vera menn til staðar sem hindra það að leikmenn verði fyrir áreiti á leið sinni af leikvelli. Það hefur verið sett út á gæsluna hjá Þór fyrr í vetur og ég vissi ekki betur en að þeir hefðu lagað sína hluti. Við fengum til að mynda skýrslu eftir leik þeirra gegn KA þar sem talað var um að gæslan hefði verið í mjög góðu lagi," sagði Einar. Skapti Hallgrímsson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, varð ekki vitni að þessum atburðum en segir hlutina ekkert vera öðruvísi hjá Þór en annars staðar og segir Þórsara ekki ætla að grípa til neinna sérstakra aðgerða. Hann gefur lítið fyrir ásakanir Framara. "Þetta er bara della. Svona er þetta bara alls staðar. Ekki hannaði ég þetta hús. Menn hafa áður fengið rautt hérna án þess að allt hafi orðið vitlaust eins og Viggó Sigurðsson sem fékk einu sinni rautt hérna en settist bara upp í stúku með krökkunum," sagði Skapti. henry@frettabladid.is
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll | Úrslitaeinvígið hefst Körfubolti Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Grindavík - Tindastóll | Úrslitaeinvígið hefst Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Sjá meira