Sport

Valssigur í Víkinni

Valsmenn gerðu góða ferð í Víkina í kvöld og sigruðu heimamenn með fimm marka mun, 28-23 í suður riðli 1.deildar karla í handknattleik. Með sigrinum eru Valsmenn í toppsæti suður deildar með 14 stig ásamt ÍR-ingum sem lögðu Selfyssinga 29-28 á Selfossi í kvöld. Þá gerðu Stjarnan og ÍBV jafntefli 27-27 í Garðabæ. Í norður riðli sigruðu KA-menn Fram 26-25 fyrir norðan, Afturelding tapaði heima gegn Þórsurum 24-25 og loks gerðu FH og HK jafntefli í Kaplakrika 26-26. Haukar eru sem fyrr efstir í norður riðli með 12 stig, HK hefur 11 og KA 10.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×