Flestir telja að Siv ætti að víkja 27. júní 2004 00:01
Um þriðjungur þeirra sem afstöðu tóku í könnun Fréttablaðsins taldi að Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra ætti að víkja úr embætti þegar Framsóknarflokkurinn missir einn ráðherrastól 15. september næstkomandi. Um fimmtungur var á þeirri skoðun að Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ætti að víkja. Samkvæmt samkomulagi stjórnarflokkanna færast umhverfisráðuneyti yfir til Sjálfstæðisflokksins þegar Davíð Oddsson lætur af embætti forsætisráðherra í haust og Halldór Ásgrímsson tekur við. Fækkar þá ráðherrum Framsóknarflokksins um einn en Sigríður Anna Þórðardóttir verður sjöundi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og tekur við umhverfisráðuneytinu. Hlutfall óákveðinna og þeirra sem ekki vildu svara var um 45 prósent og þeir sem afstöðu tóku voru ekki endilega stuðningsmenn Framsóknarflokksins. Ekki var marktækur munur í könnuninni á afstöðu karla og kvenna að öðru leyti en því að talsvert fleiri karlar en konur vildu að Halldór Ásgrímsson viki sæti. Þá voru heldur fleiri á landsbyggðinni en í þéttbýli sem nefndu Siv Friðleifsdóttur. Næstur á eftir þeim Siv og Halldóri kom Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, en rúmlega 16 prósent vildu að hann missti sæti í ríkisstjórnina. Þar á eftir kom Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, með rúm ellefu prósent en ekki var marktækur munu á þeim Árna Magnússyni og Valgerði Sverrisdóttur sem komu best út. Könnunin var gerð síðastliðinn þriðjudag. Hringt var í 800 manns og spurt: "Hvaða ráðherra Framsóknarflokksins finnst þér að eigi að víkja úr embætti þegar flokkurinn missir eitt ráðherraembætti 15. september?" og voru svarmöguleikarnir núverandi ráðherrar flokksins.
Fréttir Innlent Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Innlent Fleiri fréttir Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Sjá meira