KR upp í fimmta sæti 15. júní 2004 00:01
KR-ingar vippuðu sér upp í fimmta sæti Landsbankadeildarinnar í gærkvöld þegar þeir lögðu Skagamenn að velli, 1–0, í Frostaskjólinu. Sigurinn var jafnframt sá tíundi í röð hjá KR á ÍA í vesturbænum. KR-ingar fengu óskabyrjun í leiknum þegar þeir komust yfir á fjórðu mínútu. Andri Karvelsson, varnarmaður ÍA, braut á KRingnum Arnari Jóni Sigurgeirssyni rétt innan vítateigs og dómari leiksins, Garðar Örn Hinriksson, dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Eftir markið drógu KR-ingar sig aftar og Skagamenn komust meira inn í leikinn og jafnræði myndaðist. Skagamenn voru ógnandi í föstum leikatriðum, bæði hornspyrnum og aukaspyrnum en annaðhvort bjargaði markvörðurinn Kristján Finnbogason eða tréverkið KR-ingum. KRingar voru hins vegar meira ógnandi í sínum sóknarleik og var sérstaklega gaman að fylgjast með hinum unga Kjartani Henry Finnbogasyni gera varnarmönnum Skagamanna lífið leitt. KRingar fengu nokkur góð færi og bæði Kristinn Hafliðason og Arnar Gunnlaugsson misnotuðu gullin tækifæri til að auka forystuna fyrir KR. Síðari hálfleikur einkenndist af baráttu beggja liða, hvorugt náði að skapa sér færi að ráði og því fóru KR-ingar með sigur af hólmi, 1–0. Mikilvæg þrjú stig fyrir Íslandsmeistarana en Skagamenn, sem hafa oft leikið betur, naga sig væntanlega í handarbökin. ■ ÞAÐ SEM SKIPTI MÁLI KR – ÍA 1–0 1–0 Arnar Gunnlaugsson, víti 4. DÓMARINN Garðar Örn Hinriksson, mjög góður BESTUR Á VELLINUM Kjartan Henry Finnbogason KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–9 (5–5) Horn 0–8 Aukaspyrnur fengnar 16–21 Rangstöður 5–3 Gul spjöld (Rauð spjöld) 3–3 (0–0) MJÖG GÓÐIR Kjartan Henry Finnbogason KR Kristinn Hafliðason KR GÓÐIR Kristján Finnbogason KR Bjarni Þorsteinsson KR Kristján Örn Sigurðsson KR Gunnar Einarsson KR Arnar Gunnlaugsson KR Haraldur Ingólfsson ÍA Gunnlaugur Jónsson ÍA
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ótrúlegt að við höfum unnið þennan leik“ Handbolti Heimir: Hálfur fundurinn fór í Viktor á fjærstönginni Fótbolti Jón Þór: Höldum áfram að fá á okkur ódýr mörk Fótbolti Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta Körfubolti Frábær byrjun dugði ekki til og Gunnlaugur Árni úr leik Golf „Það er bara áfram gakk og vinna næsta“ Sport Uppgjörið: Fram - Valur 27-26 | Fram einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum Handbolti „Við erum með fókus á þessu og æfum þetta alveg nokkuð stíft“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - FH 1-3 | FH spyrnti sér af botninum með sigri á Skaganum Íslenski boltinn Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Handbolti Fleiri fréttir Heimir: Hálfur fundurinn fór í Viktor á fjærstönginni Jón Þór: Höldum áfram að fá á okkur ódýr mörk Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta „Ótrúlegt að við höfum unnið þennan leik“ Frábær byrjun dugði ekki til og Gunnlaugur Árni úr leik „Það er bara áfram gakk og vinna næsta“ „Við erum með fókus á þessu og æfum þetta alveg nokkuð stíft“ „Ekki á hverjum degi, ekki einusinni á hverju tímabili“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-2 | Hornspyrnur urðu heimamönnum að falli Uppgjörið: ÍA - FH 1-3 | FH spyrnti sér af botninum með sigri á Skaganum Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Ísak Andri lagði upp sigurmark Norrköping Uppgjörið: Fram - Valur 27-26 | Fram einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum Uppgjörið: Breiðablik - Valur 2-1 | Blikar á toppinn Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Kristian Nökkvi fær nýjan þjálfara hjá Ajax Cunha að ganga í raðir Man United Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Muslera með mark og Mourinho súr Framarar fengu drjúgan tíma til að sóla sig um helgina Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Dagur bikarmeistari eftir maraþon vítakeppni Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Pétur tekur við þjálfun Hauka Nýliðar á ráspól fyrir stærsta kappakstur í heimi „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Tveir Vestramenn fluttir með sjúkrabíl eftir leik í gær Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Skoraði fyrsta markið fyrir Portúgal og fagnaði að hætti föður síns Sjá meira