Steingrímur mótmælir 14. september 2004 00:01
Steingrímur J. Sigfússon formaður vinstri grænna segir að hugmyndafræði stjórnarflokkkanna í málefnum Landssímans, gangi út á að skjóta fyrst og spyrja svo. Ef einkavæða eigi Landssímann áður en klárað verður að byggja upp viðunandi dreifikerfi sé verið að snúa hlutunum á haus. Steingrímur J Sigfússon segist telja að eina leiðin til að tryggja jafnan aðgang allan landsmanna að síma og gagnaflutningum sé að falla frá einkavæðingu. Eins og staðan er nú hjá stjórnarflokkunum gerðu þeira réttast í því að fresta að minnsta kosti einkavæðingu og fara í að byggja upp ADSL samband um allt land og GSM kerfið. Hann segir hugmyndir innan stjórnarflokkanna um að standa að útboði eftir sölu símans, þar sem símafyrirtækjum gefist kostur á að bjóða í uppbyggingu dreifikerfisins, fyrir greiðslur úr ríkissjóði, vægast sagt fáránlegar. Hann segir þetta eitthvert sorglegasta dæmið af mörgum slæmum um handabakavinnubrögð og kreddu og sé stjórnarflokkunum báðum og öllum þeim sem að þeim standa til skammar.Steingrímur segir það afleita útgáfu af hugmyndafræði að skjóta fyrst og spyrja svo. Það gangi ekki að rjúka til og selja fyrst og stoppa svo í götin og bæta úr ágöllum í fjarskiptakerfinu eftir það. Á allan hátt væri betra að beita afli símans á meðan hann er enn opinbert þjónustufyrirtæki og ef það hefði áhrif á afkomu þá væri hægt að gera vægari kröfur á meðan um arðgreiðslur í ríkissjóð á meðan, en Síminn sé og hafi þó verið eitt ábatasamasta fyrirtæki ríkisins. Steingrímur segir jafnframt að allir hugsandi menn viti að ekki sé hægt að ljúka málinu með útboði og uppbyggingu á dreifikerfi sem þyki viðunandi í dag, þótt pólitískur vilji væri til þess. Sífellt komi fram ný tækni og nýjar og auknar kröfur um gagnaflutninga. „Þó að menn kæmu nú GSM og tölvusamböndum um allt land í gott horf er ekki þar með sagt að það sé komið í gott horf um aldur og ævi," segir Steingrímur. „Það verður líka að tryggja að menn geti fylgt þróuninni. Það er ekkert síður áhyggjuefni hvernig á að tryggja hvernig landsbyggðin fái aðgang þegar kemur að þriðju kynslóð farsíma." Ljóst sé að einkafyrirtæki komi aldrei til með að mæta þeim kröfum nema þar sem það svarar kostnaði. Hann spyr hvort ausa eigi þá peningum úr ríkissjóði í það um alla ókomna framtíð en láta frá sér símann sem skili þó tveimur milljörðum á ári í arð sem hægt væri að nýta til þessara hluta.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira