Þjóðarbókhlaðan opin of stutt 14. september 2004 00:01
Formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að skertur opnunartími Þjóðarbókhlöðunnar komi illa niður á háshólastúdentum, sem þannig fái ekki eðlilegan aðgang að nauðsynlegri lesaðstöðu og lesefni. Um tvö hundruð námsmenn nýta sér venjulega bókasafnið á kvöldin, en ekki verður boðið upp á slíka þjónustu í vetur. Háskólaráð Háskóla Íslands tók nýlega ákvörðun um að hafa háskólabókasafnið í Þjóðarbókhlöðunni aðeins opið til klukkan sjö á kvöldin, en hingað til hefur það verið opið til klukkan tíu. Að sögn Jarþrúðar Ásmundsdóttur, formanns stúdentaráðs háskóla Íslands, kostar um 15 milljónir að hafa bókasafnið opið á kvöldin, en ekki fékkst fé til þess að bjóða upp á þá þjónustu, líkt og áður. Um fjögur hundruð pláss eða lesborð eru á safninu og á kvöldin nýta sér um tvö hundruð námsmenn aðstöðuna. Jarþrúður segir að verið sé að úthýsa stúdentum eftir klukkan sjö á kvöldin og þar sem sá góði kostur sem safnið bjóði upp á sé nemendum nauðsynlegur sé staðan sem komin er upp mjög alvarleg. Jarþrúður segir að mótmæli sem boðað hefur verið til næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan sjö, fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna séu neyðarúrræði. Stúdentaráð hafi þegar bent á ýmsa möguleika til þess að leysa málið á farsælan hátt, en hún segir ekki vilja til þess að taka á málinu. Til að mynda hafi verið bent á að skrautgrindur sem til stendur að setja utan við Náttúrufræðihúsið kosti 18 milljónir og nær væri að nota þá peninga til þess að bæta kjarnastarfsemi Háskólans.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira